Brúará er ein af betri bleikjuám landsins. Iðulega skipar hún sér sess meðal þeirra 10 aflahæðstu. Ástundun og fjöldi nýttra stangardaga við Brúará hefur s.s. verið mismunandi gegnum tíðinni en heldur virðist þó hafa dregið úr viðveru veiðimanna við ánna og getur líklega tvennt spilað þar stórt hlutverk. Annars vegar fer það orð af henni að hún sé erfið og dágóðan tíma þurfi til að læra á hana og hitt, að veiði hafi dregist mikið saman í ánni og bleikjunni fækkað. Ekki ætlum við að rengja það að til að ná árangri í Brúará þurfi góða ástundun og mikinn áhuga, en veiðitölur úr ánni, sem fengar eru frá veiðimálastofnun, benda ekki til þess að bleikjustofn árinnar sé í frjálsu falli, heldur frekar til þess að hann sé í mikilli sókn og að ná jafnvægi aftur. 

Eins og áður sagði þá þarf góða ástundun og mikinn áhuga til að ná árangri í Brúará. En auðvitað er það ekki endilega nóg; Fluguboxið þarf að geyma réttu flugurnar. Nú hefur Eins og áður sagði þá þarf góða ástundun og mikinn áhuga til að ná árangri í Brúará. En auðvitað er það ekki endilega nóg; Fluguboxið þarf að geyma réttu flugurnar. Við höfum leitað ráða hjá vönum Brúarármönnum og  sett upp lista af reynslumiklum flugum úr Brúará, ásamt 1 eða 2 leynivopnum. Auðvitað er ekki um tæmandi list að ræða. Í boxinu eru 20 flugur. Á myndinni sést dæmi um þær flugur sem eru í boxinu.

 


Hér að neðan er hægt að sjá dæmi um þær flugur sem eru í boxinu – í því eru 20 flugur.

Almennt verð fyrir boxið er kr. 4.900

Þeir sem skráðir eru á póstlista veiða.is fá boxið á 4.500 kr.

KAUPA BOXIÐ