Álftá á Mýrum

Staðsetning: Mýrar, um 98 km frá Reykjavík
Veiðisvæði: Öll Álftá og Veituá frá Ármótum að veiðistað nr.49. Gott aðgengi er að veiðistöðum og fólksbílafæri að þeim flestum.
Tímabil: 1.júlí til 30.september
Veiðileyfi: Upplýsingar um veiðileyfi og lausar stangir gefur umsjónarmaður svæðisins, Dagur Garðarsson. Stangirnar tvær eru seldar saman.
Daglegur veiðitími: Veitt er frá kl. 7.00 til 13.00 og 16.00 til 22.00 daglega.
Fjöldi stanga: 2
Leyfilegt agn: Fluga og maðkur.
Vinsælar flugur: Svört & rauð frances, blue boy, green but og haugurinn.
Veiði síðastliðið ár: 2013, 654 laxar. 2012, 149 laxar, 2011, 481 lax. 2010, 475 laxar. 2009, 625 laxar.

Álftá er afar skemmtilegt og þægileg 2ja stanga laxveiðiá á Mýrunum. Þarna hefur verið góð veiði undanfarin ár og síðastliðin sumur hafa verið góð og með þeim aflahæstu í sögu Álftár. Sumarið 2011 veiddust 481 lax, sumarið 2010 veiddust 475 laxar og sumarið 2009 veiddist 625 laxar. Álftá á upptök sín í Álftahrauni og í mörgum litlum stöðuvötnum þar í kring. Í Álftá hefur verið mjög góð sjóbirtingsveiði.

 Ath: Nýjir leigutakar tóku við Álftá í vetur – áin verður ekki seld í almennri sölu á komandi sumri

Veiðihús

Veiðihúsið er með tveimur 2ja manna svefnherbergjum, rafmagni og hita. Að auki er svefnrými á svefnlofti. Í baðherbergi er sturta og við húsið er gasgrill. Veiðimenn mega koma í húsið einni klukkustund fyrir upphaf veiði og skulu rýma það á sama tíma á brottfaradegi. Veiðimenn skulu ræsta húsið rækilega fyrir brottför og taka með sér allt rusl. Hægt er að kaupa þrif, sjá má upplýsingar um það í veiðihúsinu. Veiðimenn leggja sjálfir til sængur og sængurfatnað.

Leiðarlýsing að veiðihúsi:

Ekið er sem leið liggur í gegnum Borgarnes og farið þjóðveg upp á Mýrar til vinstri þegar út úr Borgarnesi er komið. Ekið er um 18 km og beygt til vinstri veg nr.533 rétt áður en komið er að Lyngbrekku. Ekinn er um 1km þegar komið er að afleggjara á hægri hönd sem liggur að veiðihúsinu.

Hafðu samband

Tölvupóstur: [email protected]
Sími: 897 3443

Facebook