Bjarnastaðir

Staðsetning: Veiðisvæðið að Bjarnastöðum er um 9 km frá Húsafelli, 112 km frá Reykjavík og um 57 km frá Borgarnesi.
Leyfilegt agn: Sumarið 2012 er einungis leyft að veiða á Flugu.
Fiskur: Á svæðinu veiðist bæði bleikja og lax. Skylt er að sleppa allri bleikju sem veiðist og helst bera að reyna að forðast að setja í bleikjuna á svæðinu.
Veiðitími: Júlí til loka september.
Stangafjöldi: 2 stangir.
Daglegur veiðitími: Enginn sérstakur.
Um ánna: Hvítá í Borgarfirði er 117 km löng jökulá sem aðskilur Borgarfjarðarsýslu frá Mýrarsýslu. Hvítá er 10. lengsta á Íslands. Veiðisvæðið fyrir landi Bjarnastaða er 2 km að lengd.

Aðstöðuhús: Nei, ekkert slíkt er á svæðinu.
Umsjónarmaður: Bjarnastaðarbændur.

Ytri Rangá er ein þekktasta og besta íslenska laxveiðiáin. Fjölbreyttir veiðistaðir, frábær veiði og fallegt umhverfi hefur gert hana að einni af vinsælli veiðiám landsins. Meðalveiði á sumri, síðustu 9 árin, er tæpir 7.000 laxar. Aldeilis ótrúlegar tölur. Mest var veiðin sumarið 2008 þegar 14.315 komu á land. Það er langmesti afli sem vitað er að veiðst hafi á stöng í einni laxveiðiá hérlendis til þessa. Sumarið 2014 veiddust 3.063 laxar.

Ytri Rangá á upptök sín í Rangárbotnum í um 200 m hæð yfir sjávarmáli og er hún ein stærsta lindá landsins. (Rennsli frá 40-60 rúmm./sek.) Ytri Rangá sameinast svo Þverá ca. 10 km frá Sjó. Sameinaðar heita árnar Hólsá. Laxasvæðið í Ytri Rangá nær frá ármótunum við Hólsá upp að Árbæjarfossi.

Ólíkt flestum öðrum laxveiðiám, þá er vatnsmagn árinnar mjög stöðugt og áin litast sjaldan, þótt mikið rigni. Á þurrum sumrum helst vatnsmagnið einnig stöðugt.

Veiðihús

Glæsilegt veiðihús er við Ytri Rangá. Það er með 18 tveggja manna herbergjum, glæsilegri borðstofu, setustofu og vel útbúnu eldhúsi. Skyldu gisting er frá 6. júlí til 20. sept. Verð pr. sólarhring á mann er kr. 24.900 (6-16. júlí og 6-20. sept) og kr. 29.900(16. júlí – 6. sep). Fæðisgjald greiðist samhliða greiðslu veiðileyfa.

Ath: Hægt er að kaupa gistingu í veiðihúsinu, utan þess tíma sem reglan um skyldugistingu gildir.

Hafðu samband

Tölvupóstur: [email protected]
Sími: 897 3443

Facebook