Ytri Rangá

Skógá

Skógá undir Eyjafjöllum er 4ra stanga lax og silungsveiðiá. Veiðin, árin á undan gosinu, var mjög góð og stundum hreint út sagt frábær en árin 2010-2012 var áin í lægð. Síðustu 2-3 hefur áin verið að ná sér á strik og hefur veiðin oft verið mjög góð. Árlega hefur rúmlega 30 þús seiðum verið sleppt í ána.

Mest var veiðin sumarið 2008 þegar 1.537 laxar og um 500 bleikjur komu á land.

Almennar upplýsingar
Fjarðlægð: Um 150 km frá Reykjavík, ca. mitt á milli Víkur og Hvolsvallar.
Agn: Fluga og maðkur
Veiðitími: Veitt er frá morgni til kvölds, max 12 klst.
Fjöldi stanga: 4
Veiðihús: Nei – stefnt er að veiðhús verði klárt fyrir tímabilið 2023

Kort af Skógá

mynd_0617195Veiðisvæðið: Svæðið sem veitt er á samanstendur af um 7 kílómetra kafla Skógár, 2km kafla Kvernu og 1,5 km kafla Dalsár. Svæðið er afar fjölskylduvænt og gott aðgengi er að hyljum.

Hafðu samband

Tölvupóstur: [email protected]
Sími: 897 3443

Facebook