Gíslastaðir er fornfrægt veiðisvæði í Hvítá. Það er á vesturbakka árinnar, við Hestfjall. Í gegnum tíðina hafa margir stórlaxar veiðst á svæðinu og mörg ævintýrin orðið til. Síðustu ár hefur sjóbirtingur aukist til muna.

Um svæðið: Veiðisvæðið er um það bil 3 km með 13 merktum veiðistöðum
Fjöldi stanga: 3 stangir.
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur og spúnn.
Veiðileyfi og verð: Stangirnar seljast í einum pakka, 3 stangir saman. Verð á virkum dögum, fyrir allar stangir, kr. 15.000 og á helgidögum kr. 21.000.
Veiðihús: Glæsilegt Veiðihús fylgir svæðinu sem rúmar 8 manns. Gas og vatn er í húsinu. Einig eru sólarsellur fyrir ljós.
Veiðitími: 21. júní – 21. ágúst: 07.00 – 13.00 og 16.00 – 22.00
22. ágúst – 30. sept: 07.00 – 13.00 og 15.00 – 21.00
Leyfilegt er að koma hálftíma eftir að veiðitíma líkur, kvöldi fyrir veiðidag.

{gallery}gislastadir{/gallery}

[email protected]