Hlíðarvatn í Selvogi hefur verið að gefa vel þessar síðustu vikur. Við birtum í vikunni myndir af boltableikjum sem veiddust á mánudag og þriðjudag og svo í dag fengum við fréttir frá honum Trausta Jónssyni sem er nú í Hlíðarvatni í fyrsta skipti. Hann sagði: „Erum í fyrsta skipti í Hlíðarvatni og það gengur ljómandi vel. Fengum tíu bleikjur á 3 tímum í gærkveldi, bara gaman“. 

 

Við minnum á að tilboðið á Hlíðarvatnsdögunum rennur út á morgun.

[email protected]