Veiðifélagið Hreggnasi hefur nú tryggt sér veiðirétt á stórum hluta á Nesveiðum í Laxá í Aðaldal. Þetta var tilkynnt í dag á heimsíðu Hreggnasa. Er um mjög áhugaverða viðbót að ræða fyrir félagið. Hreggnasi er nú að skapa sér sess sem einn stærsti veiðileyfasali/leigutaki landsins. Fyrir um viku síðan þá tók félagið við Brynjudalsá en fyrir eru ár eins og Laxá í Kjós, Svalbarðsá, Grímsá, Korpan og Fossá. Hér að neðan má lesa fréttatilkynningu Hreggnasa:
Reykjavik, 6. nóv 2013
Fréttatilkynning
„Veiðifélagið Hreggnasi hefur tryggt sér veiðirétt að stórum hluta á Nesveiðum í Laxá í Aðaldal. Samningur þess efnis var undirritaður í dag, og tekur gildi strax fyrir sumarið 2014. Um er að ræða alla stangardaga síðari hluta sumars á þessu mesta stórlaxaveiðisvæði landsins.
Með þessu er Hreggnasi að tryggja aðkomu viðskiptavina sinna að Nesveiðum. Ljóst er að miðbik sumarsins mun allt fara á erlendan markað og að framboð veiðileyfa á innanlandsmarkaði mun verða mun minna en undanfarin ár.
Veiðisvæðin kennd við Nes, Árnes, Tjörn, Knútsstaði, Ytra-Fjall og Hólmavað eru sem áður segir einhver mestu stórlaxasvæðin hérlendis. Því til staðfestingar má benda á að nokkrir af allra stærstu löxum nýliðins veiðitímabils fengust á ofangreindum veiðisvæðum.
Sala veiðileyfa næsta sumar er þegar hafin hjá Hreggnasa.