Um helgina, bæði laugardag og sunnudag, verður hin árlega sumarhátíð Veiðihornsins haldin í Síðumúla 8. Þar mun allt það nýjasta frá Simms verða kynnt og veiðimönnum boðið að koma með gömlu Simms vöðlurnar sínar til yfirhalningar hjá Simms sérfræðingum sem verða í heimsókn. Jafnframt verða ýmiss tilboð, kynningar og léttar veitingar fyrir veiðimenn sem leggja leið sína í búðina. Þetta er jafnframt kjörið tækifæri fyrir veiðimenn að ná sér í blaðið „Veiði 2014“. Já, sumarið er komið og nú er um að gera að hefja veiðivertíðina með formlegum hætti í Veiðihorninu um helgina.