Veiðileyfi í 1 dag fyrir 1 stöng

Leyfilegt agn: Maðkur, fluga, og spónn.

Veiðitími: 7-24

 

Hóp liggur á mörkum Vestur- og Austur Húnavatnssýslna skammt norðan þjóðvegar nr.1 í Víðidal.

Hópið er fimmta stærsta náttúrulega vatn landsins og gætir þar flóðs og fjöru, misjafnt þó. Á mikilli fjöru stendur Þingeyrarif vel upp úr og skiptir vatninu nánast í tvennt þó alltaf skorti eitthvað upp á að það nái vesturbakkanum, en endi rifsins er nokkuð til marks um veiðilega staði norður með vesturbakkanum.

Til að komast að vatninu vestanverðu er um tvær leiðir út frá Hringveginum að ræða. Vegur 711 (Vatnsnesvegur) liggur nokkru sunnan við Víðigerði og út frá honum er hægt að fara 717 sem liggur á milli Vesturhópsvatns og Sigríðastaðavatns að Skollanesi. Út af þeim vegi er hægt að taka veg merktan Ásbjarnarnes og í framhaldi heldur torfæra leið upp á Bjargás og út með Nesbjörgum að vestan. Undir Nesbjörgum er fjöldi þekktra veiðistaða, svo sem við Bryggjuna og Vaðhvamm. Undir Myrkurbjörgum eru fjöldi álitlegra staða og fremst á ásnum eru Skipeyri og Bjargatá sem gefið hafa vel. Út frá Bjargatá eru veiðimenn komnir langleiðina að ós Hópsins. Þessir veiðistaðir eiga það sammerkt að niður að þeim flestum er nokkuð bratt en á flestum stöðum má auðveldlega ganga milli vatns og hlíðar. Meðfram vesturbakkanum liggur aðalfarvegur vatnsins til sjávar og er þar yfirleitt sterkur straumur skammt frá landi.

Víðsvegar eru nokkrir sandflákar við vesturbakka vatnsins og sumir hverjir ná töluvert langt út en ekki er víst að þeir séu fastari fyrir en svo að þeir getir ekki færst til á milli ára eða jafnvel missera.

Að vestur bakka vatnsins er einnig hægt að komast með því að aka veg 716 (Borgarvirki) út frá Hringveginum skammt norðan Víðigerðis. Gæta þarf þess að beygja út af 716 þar sem hann greinist og liggur 717 til hægri (norðurs) meðfram Vesturhópsvatni en 716 liggur til vinstri sunnan Vesturhópsvatns og áfram yfir á 711. Vegur 717 liggur meðfram Borgarvirki og sé maður ekki undir tímapressu er tilvalið að staldra þar við og njóta staðhátta og útsýnis áður en haldið er áfram að Skollanesi (Gottorp) eða Ásbjarnarnesi.

Nokkrir þekktir veiðistaðir eru við Ásbjarnarnes og þá helst norðan þess og austan. Vestan við Ásbjarnarnes liggur Nesvík sem er afar grunn og ná grynningar mjög langt út í vatnið til norðurs. Frá Ásbjarnarnesi og inn að Skollanesi er fjöldi veiðistaða, sem og á Skollanesinu sjálfu.

Við Borgarey rennur Víðidalsá í Hópið og lítið er skráð af veiðistöðum þar, enda veiði ekki heimil við ósa Víðidalsár. Þegar nær Nesi dregur fyrir austan Víðidalsá þekkjast aftur nokkrir veiðistaðir auk þess sem vinsælt er að egna fyrir fisk austan ósa Gljúfurár á Nesi.

Ekki eru margir þekktir veiðistaðir við austanvert Hóp, helst undan bæjunum Haga og Leysingjastöðum.

Í Hópinu eru allir þekktir laxfiskar á Íslandi. Um vatnið fara laxar á leið sinni í Víðidalsá og Gljúfurá, þar er töluvert af staðbundum urriða, en ekki síður sjóbirtingur sem getur orðið mjög vænn. Bleikja er töluverð í vatninu og þá ekki síst sjóbleikja sem skv. rannsóknum líður svo vel í Hópinu að einungis þriðjungur hennar gengur alveg til sjávar, helst vill hún bara halda sig í vatninu og út að ósi. (efni af vef www.fos.is)

Verð veiðileyfa fyrir sumarið 2024 er kr. 18.500 – Einnig er hægt að kaupa sumarkort á kr. 18.500