Fremri Laxá er ein af betri urriðaám landsins. Sá fjöldi urriða sem gengur í ána yfir sumarmánuðina er gríðarlegur og oft er veiðin það mikil að veiðimenn tapa fljótt tölunni á fjölda fiska. Urriðinn í Fremri Laxá er kannski ekki mjög stór, en hann er sterkur og sprækur.

HÉR ERU LAUS LEYFI Í FREMRI

Staðsetning: ca. 270 frá Reykjavík.
Veiði síðustu ár: 2008, 5.456 urriðar. 2009, 4.009 urriðar. 2010, 3.376 urriðar. 2011, 3.622 urriðar.
Fjöldi stanga: 3 stangir, nema 25. maí – 1. júní og 16. ágúst – 15. sept, þá eru 2 stangir.
Tímabilið: 25. maí til 15. sept.
Veiðitími: Heimilt er að veiða hvenær sem er sólahringsins, þó aldrei lengur en 12 tíma innan hans.
Veiðihús: Húsið er komið vel til ára sinna en í því geta 6 manns gist. Stutt er til veiða frá húsinu.
* Húsgjald kr. 4.500 pr. sólarhing

Fremri Laxá er bergvatnsá sem rennur í Laxárvatn en á uppruna sinn í Svínavatni. Áin er fremur nett veiðiá, kjörin fyrir fluguna og ekki síður þurrfluguna. Á hverju sumri veiðast nokkrir laxar í Fremri Laxá. Sem dæmi um það veiddust 28 laxar sumarið 2010 og 11 laxar sumarið 2011. Í gegnum tíðina hafa hóparnir sem sækja ánna heim verið henni mjög trúir og komið ár eftir ár enda er hún fjölskylduvæn með góðu aðgengi að mörgum góðum hyljum.

Nánari upplýsingar

LAUS VEIÐILEYFI