Galtalækur er góð 2ja stanga urriðaá á suðurlandi. Oft veiðist mjög vel í ánni en hún er viðkvæm og nálgast þarf veiðistaði með gát. Leyfilegt agn er fluga. Sjá myndir frá veiðisvæðinu hér að neðan.
{gallery}galtalaekur{/gallery}

Staðsetning: Suðurland. Um 105 km frá Reykjavik.
Veiðisvæðið: Frá brú neðan við bæinn Galtalæk niður að ármótum Galtalækjar og Ytri Rangár. Gott aðgengi er að stærstum hluta svæðisins.
Fjöldi stanga: 2
tímabil: 1. apríl – 15. september
Veiðitími: 7-13 og 16-22, fram til 15. ágúst. 7-13 og 15-21, frá 15. ágúst.
Leyfilegt agn: Fluga
Reglur: Sleppa skal öllum fiski

Veiðileyfi í Galtalæk veiðitímabilið 2016 má finna inná veiða.is. Á vefnum eru skráðir valdir dagar í ánni næsta sumar, en fyrir aðra daga má senda póst á info at veida.is