Geirlandsá á Síðu er staðsett í V-Skaftafellssýslu og er án vafa ein af bestu sjóbirtingsám landsins.
Veiðivon er fyrst og fremst mjög vænn sjóbirtingur með þó nokkurri laxveiði og bleikjuvon.
Áin er 22 km löng bergvatnsá og á upptök sín í Geirlandsárbotnum sem er í 500-600 m.h.y.s. á vesturhálendi Kaldbaks. Fiskgengi hluti árinnar er um 12 km langur sem nær upp að Hagafossi. Fyrir neðan fossinn rennur áin í hrikalega fögrum gljúfrum sem breikka svo er neðar dregur en þar fer áin að sveigja um gljúfurbotninn og rennur svo um flatlendi þar sem malarbotn er og að lokum á söndum.
 
Leiðarlýsing að húsi
Ekið er sem leið liggur eftir þjóðvegi 1 til Kirkjubæjarklausturs. Beygt er við hringtorgið á Kirkjubæjarklaustri og keyrt inn áfram um 3 km á veg 203 sem er Geirlandsvegur.Þar skammt innan við bæinn Geirland er tekin vinstri beygja inn heimreiðina að veiðihúsinu sem er staðsett í skógarlundi undir fjallinu Kylli.

 

Almennar upplýsingar
Veiðitími: Frá 20.júní til 18.október og auk þess vorveiði (sjóbirtingur) sem hefst 1.apríl ef aðstæður leyfa.
Veiðitilhögun: Útseld veiðitímabil í vorveiði er annars vegar tveir dagar með skiptingu á miðjum degi frá 1. apríl til 27. apríl og hins vegar vikudvöl frá föstudegi til föstudags á tímabilinu 27. apríl til 15. júní
Í sumarveiði frá 20. júní til 1. ágúst eru seldir 3 dagar saman með skiptingu á miðjum degi.(hálfur, heill, heill, hálfur dagur)
Í haustveiði sem er tíminn frá 1. ágúst til 18. okt. eru seldir tveir dagar saman með skiptingu á miðjum degi.
Fjöldi stanga: Veitt er með fjórum stöngum allan veiðitímann.
Reglur: Frá 20.september til 18.október er leyft að veiða í veiðistað númer 15 Flatarhyl og niður á neðsta veiðistað, sama gildir fyrir vorveiðina.

Heimilt er að tveir menn deili með sér einni stöng og skulu þeir fylgjast að við veiðar í ánni. Leyfilegt er að veiða á flugu, maðk, spón eða devon.

ATH. Í vorveiði er eingöngu leyft að veiða á flugu, spón og devon. Þá er mönnum frjálst að veiða og sleppa.

Seld eru leyfi til 18. október þar sem leyfi fékkst fyrir framlengingu síðasta ár, ef einhverra hluta vegna framlenging verði ekki heimiluð verða þau veiðileyfi sem seld eru þann tíma endurgreidd.

Veiðihús
Mjög gott veiðihús er við ána með fjórum tveggja manna herbergjum (kojur), eldhúsi, setustofu, baðherbergi með salerni og sturtu. Útbúið helstu raftækjum ásamt eldavél með bakarofni.
Gasgrill er á staðnum.
Lykill að veiðihúsinu er geymdur á bænum Geirlandi og á að skila honum þangað að dvöl lokinni.
Veiðimenn mega koma í veiðihúsið einni klukkustund áður en veiði hefst og skulu rýma húsið klukkan 14 brottfarardag. Veiðimönnum ber að þrífa húsið fyrir brottför og fjarlægja rusl.
Veiðimenn leggja sjálfir til sængur, sængurfatnað, tuskur og viskustykki.
Óhætt er að segja að aðstaðan við Geirlandsá sé orðin fyrsta flokks, og hvetjum við fólk til þess að nýta sér þann möguleika að kaupa veiðileyfi á sumartímanum gegn vægu gjaldi og njóta hússins og útiverunnar.

Ódýr sumarleyfi
Tíminn frá 20. júní til 1. ágúst eru seldir 3 dagar saman. (hálfur, heill, heill, hálfur dagur)
Leyfilegt er að veiða á fjórar stangir þessa sumardaga. Hvert holl kostar til félagsmanna 42,000 krónur. Nema tímabilið 29/7-1/8 sem kostar kr. 46,800.
Veiðihús er innifalið í öllum verðum.

Nánari upplýsingar:Vefur svfk, www.svfk.is