Það þarf ekki að fara mörgum orðum um Grenlækjarsvæðið sem er eitt það fengsælasta á landinu. Þá lengir þetta svæði sjóbirtingstímabilið þar sem hann veiðist fyrr hér en á þeim svæðum sem við eigum að venjast.

Grenlækur er staðsettur í Landbroti rétt vestan Kirkjubæjarklausturs og er beygt til hægri af þjóðvegi nr. 1 rétt áður en farið er yfir Skaftárbrúna og er um 10 mínútna keyrsla þar sem keyrt er yfir árnar Grenlæk, Sýrlæk og Jónskvísl áður en beygt er til vinstri að heimreiðinni að Fossum og Arnardrangi. Þar er ekið sem leið liggur í átt að Arnardrangi en tekinn afleggjari um girðingarhlið til hægri rétt áður en komið er að túnhliðinu við Arnardrang. Þar er ekinn slóði sem liggur í hraunlendi meðfram túninu, niður brekku og yfir lækjarsprænu en sveigir síðan niður á sandinn. Slóðanum er fylgt niður að brú yfir Grenlæk. Stærstu bílar komast ekki yfir brúna og verða að fara yfir á vaði sem er ofanvert við brúna, en misjafnt er milli ára hvernig aðstæðurnar eru. Fylgja skal stikaðri slóð og forðast að aka út fyrir hana.
Vinsamlegast lokið öllum hliðum á eftir ykkur.

Veiðikort

Veiðihús:
Félagið á hús sem er á besta stað í hraunjaðrinum rétt áður en komið er í Flóðið. Húsið er rafvætt og skiptist þannig að það er eldhús, setustofa, snyrting og sturta í annarri álmunni og fjögur tveggja manna (kojur)svefnherbergi í hinni. Gasgrill er á staðnum. Veiðimenn mega koma í veiðihúsið einni klukkustund áður en veiði hefst og skulu rýma húsið klukkan 14 brottfarardag.
Veiðimönnum ber að þrífa húsið fyrir brottför og fjarlægja rusl.
Veiðimenn leggja sjálfir til sængur, sængurfatnað, tuskur og viskustykki.
Eftir er að lagfæra húsin að utan og verður það vonandi gert næsta sumar.

Leiðarlýsing að húsi 
Beygt til hægri af þjóðvegi nr. 1 rétt áður en farið er yfir Skaftárbrúna og er um 10 mínútna keyrsla þar sem keyrt er yfir árnar Grenlæk, Sýrlæk og Jónskvísl áður en beygt er til vinstri að heimreiðinni að Fossum og Arnardrangi. Þar er ekið sem leið liggur í átt að Arnardrangi en tekinn afleggjari um girðingarhlið til hægri rétt áður en komið er að túnhliðinu við Arnardrang. Þar er ekinn slóði sem liggur í hraunlendi meðfram túninu, niður brekku síðan er beygt til vinstri og sést þá húsið sem staðsett er í hraunjaðrinum.

Veiðitilhögun
Útseld veiðitímabil eru tveir stangardagar og er skipt á miðjum degi. Leyfilegt er að tveir séu saman um stöng.

Veiðitilhögun í vorveiði
Vorveiði í Grenlæknum hefst 7. maí og stendur til 20. júní.
Daglegur veiðitími er 7-13 og 16-22 frá 7. maí – 14. ágúst, en eftir það frá 7-13 og 15-21 Leyfilegur hámarksafli á hverja stöng á dag í vorveiði er takmarkaður við þrjá sjóbirtinga. Engar takmarkanir eru á veiði vegna staðbundins urriða og bleikju.
Þá er mönnum frjálst að veiða og sleppa.
Leyfilegt agn í vorveiði er einungis fluga og spónn.
Æskilegast er að veitt sé á flugu.

 

Veiðitilhögun í sumarveiði
Sumarveiði hefst 20. júní og eru aðallega væn bleikja og staðbundinn urriði að veiðast fram undir miðjan júlí en frá þeim tíma fara einnig fyrstu birtingarnir að veiðast.
Daglegur veiðitími er 7-13 og 16-22 frá 7. maí – 14. ágúst, en eftir það frá 7-13 og 15-21 Leyfilegur hámarksafli á hverja stöng á dag í sumarveiði er takmarkaður við þrjá sjóbirtinga. Engar takmarkanir eru á veiði vegna staðbundins urriða og bleikju.
Þá er mönnum frjálst að veiða og sleppa.
Leyfilegt agn í sumarveiði er fluga, spónn og maðkur.
Æskilegast er að veitt sé á flugu.

Veiðibækurnar fyrir bæði Grenlæk og Jónskvísl eru við bæinn Fossa, vel merkt. Vinsamlegast skráið allan afla í þær og setjið á sinn stað en ekki taka með upp í veiðihús þar sem þær gætu gleymst. Ástæðan fyrir þessari staðsetningu er sú að ekki öll veiðifélögin um Grenlæk og Jónskvísl nota veiðihús SVFK.

Skrá skal allan afla vel og skilmerkilega í veiðibók einnig þeim fiski sem er sleppt.
Athugið að merkta fiska skal meðhöndla samkvæmt fyrirmælum veiðivarðar.
Við viljum hvetja veiðimenn til betri skráningar í veiðiskýrslu. Það er mikilvægt aðeinstaklingsskrá hvern fisk. Það er oft bara skráð að fiskur sé sjógenginn en tegund vantar.
Vel skráðar veiðiskýrslur eru afar mikilvægar fyrir alla sem fylgjast með ánum og vefa ráð um nýtingu, sem og landeigendur og veiðimenn.

Veiðistaðalýsing
Svæðið afmarkast af skiltum við veiðisvæðaskil. Að ofan eru veiðiskilin við skilti ofan við Efri-Skurð, en að neðan við skilti sem er staðsett við Neðri-Skurð, neðan við brúna. Ferðast er um austurbakka veiðisvæðisins því vesturbakkinn er tæplega fær öðrum en fuglinum fljúgandi. Einnig má fara um nánast allt Flóðið á vöðlum, en þó þarf að gæta fóta sinna því á stöku stað er botninn laus í sér. Eins getur gróður flækst fyrir fótum veiðimanna, einkum síðsumars. Bátur hefur verið til ráðstöfunar fyrir veiðimenn en ekki er vitað um ástand hans.
Veiðisvæðið byrjar við tangann rétt ofan við Efri-Skurð en niður af honum breiðir lækurinn úr sér og nefnist þar Fitjaflóð eða Flóðið. Í Flóðinu má á sumrin finna ála með áberandi straumi en annars er vatnið þar kyrrt sem stöðuvatn. Margir telja veiðivon meiri í álunum en aðrir segja að best sé að kasta fyrir fisk við brúnirnar á sefbreiðunum. Enn aðrir segja að vesturbakkinn, þar sem drullupyttirnir eru, sé bestur. Neðri endi Flóðsins endar á svonefndri Trekt. Rennur Grenlækur þar fyrst milli hólma og síðan sameinaður í Neðri-Skurði allt til neðri veiðimarka sem eru við girðingu spölkorn neðan við brúna. Ekki er síður von á sjóbirtingi í Trektinni og Neðra-Skurði en í Flóðinu og Efri-Skurði.

Nánari upplýsingar:Vefur svfk, www.svfk.is