Jónskvísl og Sýrlækur í Landbroti eru mjög fallegar og skemmtilegar veiðiár. Þetta eru fyrst og fremst sjóbirtingssvæði en þó er aðalveiðin yfir sumartímann bleikja og staðbundinn urriði. Mjög gott aðgengi er að ánni.
Jónskvísl og Sýrlækur eru staðsettir í Landbroti rétt vestan Kirkjubæjarklausturs og er beygt til hægri af þjóðvegi nr. 1 rétt áður en farið er yfir Skaftárbrúna og er um 10 mínútna keyrsla þar sem keyrt er yfir árnar Grenlæk, Sýrlæk og Jónskvísl áður en beygt er til vinstri að heimreiðinni að Fossum og Arnardrangi. Vinstra megin við heimreiðina rennur svo Jónskvísl.

Kort af svæðinu

Almennar upplýsingar
Veiðitími: Veiði hefst 30. júní og stendur til 20. okt.
Veiðitilhögun: Útseld veiðitímabil eru tveir dagar og er skipt á miðjum degi.
Veiðitími: 7-13 og 16-22 frá 30.júní – 14. ágúst, en eftir það frá 7-13 og 15-21 Veitt er á þrjár stangir og leyfilegt er að tveir séu saman á stöng.
Reglur: Leyfilegur hámarksafli á hverja stöng á dag í sumarveiði er takmarkaður við fimm sjóbirtinga. Engar takmarkanir eru á veiði vegna staðbundins urriða og bleikju.
Þá er mönnum frjálst að veiða og sleppa.
Leyfilegt agn: í sumarveiði er fluga, spónn og maðkur.
Æskilegast er að veitt sé á flugu.

Veiðihús
Félagið á hús sem er á besta stað í hraunjaðrinum rétt áður en komið er í Flóðið. Húsið er rafvætt og skiptist þannig að það er eldhús, setustofa, snyrting og sturta í annarri álmunni og fjögur tveggja manna (kojur)svefnherbergi í hinni. Gasgrill er á staðnum. Veiðimenn mega koma í veiðihúsið einni klukkustund áður en veiði hefst og skulu rýma húsið klukkan 14 brottfarardag.
Veiðimönnum ber að þrífa húsið fyrir brottför og fjarlægja rusl.
Veiðimenn leggja sjálfir til sængur, sængurfatnað, tuskur og viskustykki.
Eftir er að lagfæra húsin að utan og verður það vonandi gert næsta sumar.

Leiðarlýsing að húsi
Beygt til hægri af þjóðvegi nr. 1 rétt áður en farið er yfir Skaftárbrúna og er um 10 mínútna keyrsla þar sem keyrt er yfir árnar Grenlæk, Sýrlæk og Jónskvísl áður en beygt er til vinstri að heimreiðinni að Fossum og Arnardrangi. Þar er ekið sem leið liggur í átt að Arnardrangi en tekinn afleggjari um girðingarhlið til hægri rétt áður en komið er að túnhliðinu við Arnardrang. Þar er ekinn slóði sem liggur í hraunlendi meðfram túninu, niður brekku síðan er beygt til vinstri og sést þá húsið sem staðsett er í hraunjaðrinum.

Veiðibækurnar fyrir bæði Grenlæk og Jónskvísl eru við bæinn Fossa, vel merkt. Vinsamlegast skráið allan afla í þær og setjið á sinn stað en ekki taka með upp í veiðihús þar sem þær gætu gleymst. Ástæðan fyrir þessari staðsetningu er sú að ekki öll veiðifélögin um Grenlæk og Jónskvísl nota veiðihús SVFK.
Skrá skal allan afla vel og skilmerkilega í veiðibók einnig þeim fiski sem er sleppt.
Athugið að merkta fiska skal meðhöndla samkvæmt fyrirmælum veiðivarðar.
Við viljum hvetja veiðimenn til betri skráningar í veiðiskýrslu. Það er mikilvægt aðeinstaklingsskrá hvern fisk. Það er oft bara skráð að fiskur sé sjógenginn en tegund vantar.
Vel skráðar veiðiskýrslur eru afar mikilvægar fyrir alla sem fylgjast með ánum og vefa ráð um nýtingu, sem og landeigendur og veiðimenn.
Athugið að merkta fiska skal meðhöndla samkvæmt fyrirmælum veiðivarðar.

Veiðistaðalýsing
Veiðisvæðið hefur verið lengt frá því sem var en aðeins var leyft að veiða upp að brú, nú er leyft að veiða ofan brúar upp að svokölluðu rafstöðvarlóni. Neðri skil eru enn á sama stað eða um 100 mtr. neðan við neðsta foss og ármótum Sýrlækjar en þar er belgur sem afmarkar neðri mörk. Jónskvísl er nánast einn samfelldur veiðistaður en þó eru nokkrir sérlega góðir hyljir og ber þar að nefna sérstaklega Eyvindarhyl sem getur geymt mikið af fiski. Fyrir neðan fossinn er svo góður veiðistaður sem mikið veiðist í árlega. Þá má ekki gleyma Sýrlæk sem er oft vanmetin vegna smæðar en árlega veiðast stórir fiskar í honum. Stór bleikja er í Jónskvísl en hún er yfirleitt um 3-6 pund og veiðist þá helst í júní-ágúst en eftir það virðist hlutdeild hennar minnka. Nokkuð er af staðbundnum urriða og sjóbirtingur að sjálfsögðu sem hellist inn um mánaðamótin ágúst-sept.

Nánari upplýsingar:Vefur svfk, www.svfk.is