Við höfum í vetur sett hér inná vefinn ýmsar „öðruvísi“ veiðivörur, vörur sem okkur finnst eiga fullt erindi við kröfuharða, forvitna veiðimenn. Nú kynnum við fyrir ykkur THINKFISH BOLD fluguhjól. Þetta hjól er frábærlega hannað og byggir á tækni sem kom fyrst fram í þessari mynd rétt eftir 1980 þó hugmyndin sé í rauninni mun eldri. Nú hefur Thinkfish þróað þessa tækni áfram og við teljum að hún muni ryðja sér frekar til rúms á næstu árum. Jú, við vitum að þið veiðimenn getið verið svolítið íhaldssamir og fastheldnir á venjur, en hér er eitthvað sem þið ættuð að skoða nánar.
Framleiðandi THINKFISH BOLD fluguhjólsins framleiðir einnig FLYPAD.
THINKFISH BOLD Fluguhjólið býður uppá nýja tækni við fluguveiðar – nú mun slaki á línu eða löng útdregin lína aldrei verða neitt vandamál. Kíkið á myndbrotið.
{avsplayer videoid=108 playerid=1}
Fáið allar nánari upplýsingar á [email protected] eða í síma 897 3443.
{gallery}bold{/gallery}