Veiðileyfi í Blautulóni – dagleyfi
Blautulón eru tvö talsins og eru á Skaftártunguafrétti á hálendinu. Þau eru þétt setin af frekar smárri bleikju, en þó leynast stærri ránbleikjur og stöku urriði inn á milli.
Þetta eru fjölskylduvæn lón, enda fá flestir sem reyna einhverja veiði. Umhverfi þeirra er hið klassíska eldfjallalandslag, svartir sandar og eitur grænn mosi.
Leyfilegt agn: Í Blautulónum er leyfilegt að veiða á maðk, spún, flugu en einnig er leyfilegt að veiða í net. Hirða má allan fisk.
Verð: Veiðileyfi kosta lítið, eingungis kr. 1.500 stöngin á dag.
Veiðitími: Veiði hefst 1 júní og lýkur í lok September
Þeir sem bóka leyfi á Silungsveiði Ófæru, fá leyfi í Blautulónum með að auki, frítt, til nýtinga á sama degi og leyfin í Ófærur gilda.
Hér eru leyfin fyrir Ófærur