Flóðatangi – Neðsta veiðisvæði Norðurár

Neðst í Norðurá er tveggja stanga silungasvæði sem kallað hefur verið Flóðatangasvæði. Þar í gegn fer allur sá lax sem gengur í ána og því sannarlega von að ná þar í lax. Á svæðinu er einnig nokkuð af staðbundnum silungi, urriða og bleikju. Þar eru nokkrir fornfrægir veiðistaðir eins og Kastalahylur, Hlöðutúnskvísl og Ármót en svæðið býður upp á marga veiðistaði. Veiðimörk eru vel merkt og er brýnt að virða þau.

Svæðið er fremur aðgengilegt. Ef komið er að sunnan, eftir þjóðvegi nr. 1 er beygt til hægri við söluskálann Baulan, inn á veg nr. 50. Allir slóðar eru merktir með stórum skiltum og niðri við ána sjálfa eru síðan minni skilti, við hvern veiðistað.

Brýnt er fyrir veiðimönnum að nota björgunarvesti við veiðarnar og aka alls ekki utan slóða. Með þeim hætti er sýnt gott fordæmi í umgengni við náttúruna.

Þegar fólk heldur til veiða ber að koma við í Veiðihúsinu við Norðurá sem selt hefur veiðileyfin til að taka björgunarvesti. Þar er einnig svokallaður veiðivísir sem gefur frekari upplýsingar. Að veiðiferð lokinni er vestunum skilað og skráð í veiðibók afla dagsins.

Veitt er á 2 stangir og eru þær seldar saman – verðið að neðan er fyrir 2 stangir í 1 dag. Samtals verð fyrir 2 stangir er kr. 26.900 – 32.900.

Fluga er eina leyfilega agnið.

Kvóti – 1 smálax á stöng á dag.

Flóðatangasvæðið er fjölskylduvænt og tilvalið fyrir byrjendur. Mikilvægt er að snerta fisk sem allra minnst sem skal sleppa og helst að reyna að losa úr fiskinum niðri í vatninu.

Veiðitími: 8-13 og 16-22 (15-21 eftir 14. ág)

Veiðitímabil: 5. júní – 15. sept