Fossá í Þjórsárdal er falleg lax og silungsveiðiá sem rennur í efri hluta Þjórsár.
Frá Hjálparfossi að ármótum við Þjórsá er eitt samfellt veiðisvæði. Veitt er af báðum bökkum árinnar, þar skiptast á flottar breiður, djúpir hyljir og fallegir strengir. Eitthvað af laxi gengur í ánna í júlí en besti tíminn er þegar líða fer að hausti. Undanfarin ár hefur mikið af vænum laxi veiðst í ánni þegar kemur inní sumarið en einnig veiðist bleikja, birtingur og urriði á laxasvæðinu fyrir neðan Hjálparfoss.
Aðeins er veitt með flugu í Fossá og skal sleppa öllum fiski aftur í ánna. Ekkert veiðihús er við ána og eru veiðileyfi seld frá morgni til kvölds. Veitt er á 2 stangir og eru þær alltaf seldar saman (1 laus stöng = 1 dagur, báðar stangir). Stangardagurinn (1 stöng í 1 dag) er á kr. 20.000 – 60.000 á laxveiðitímanum. Lægra verð er í vorveiðina.
Ef þig vantar aðstoð við að ganga frá bókun, hafðu þá samband í síma 897 3443 eða sendu póst á [email protected]