Galtalækur er góð 2ja stanga urriðaá sem rennur saman við Ytri Rangá vel fyrir ofan laxasvæði Ytri. Oft veiðist mjög vel í Galtalæk en veiðisvæðið er viðkvæmt og því mikilvægt að nálgast það með gætni.
Í Galtalæk má finna mjög stóra urriða og einnig að sjálfsögðu marga smærri. Einungis má veiða á flugu og skal öllum urriða sleppt aftur og handleika skal fiskinn af gætni og varast að snerta með berum höndum.
Fluga er eina leyfilega agnið.
Veiðitíminn er frá 9-19 hvern dag.
Mikilvægt er að koma við heim á bæ, Galtalæk 2, bæði áður en farið er til veiða og eftir að veiði lýkur. Skrá skal allan afla í veiðibókina við bæinn – eða senda veiðitölur á [email protected]