Holl í Hallá á Skagaströnd
2 stangir í Hallá 18-20. sept 2024
2 dagar, hád – hád
Stangardagurinn á kr.
Hallá á Skagaströnd er falleg lítil dragá sem rennur til sjávar rétt sunnan við Skagaströnd í um 10 mínútna fjarlægð frá þjóðvegi 1 við Blönduós. Veiðisvæðið er um 12 km að lengd og er veitt á tvær stangir.
Veiðitímabil er frá 20. júní til 20. september.
Veiðitími: Frá 7-13 og 16-22 til og með 20. ágúst en 21. ágúst breytist seinni vaktin og er þá frá 15-21.
Fjöldi stanga: Tvær stangir eru leyfðar í ánni og eru seldar saman í tvo daga, hálfur-heill-hálfur fyrirkomulag.
Agn og reglur: Eingöngu er leyfð fluguveiði með flugustöng í Hallá. Skylt er að sleppa öllum laxi en heimilt er að hirða urriða.
Veiðihús
Veiðihús stendur við Hallá og fylgir með veiðileyfum. Áður en komið er að Hallá að sunnanverðu er beygt til hægri og stendur veiðihúsið um 300 metra frá Skagastrandarvegi. Veiðihúsið er um 50 fm og er með gistirými fyrir 7-8 manns í tveimur herbergjum. Veiðimenn þurfa að koma með sængurföt og handklæði.
Skylt er að skrá alla veiði í veiðibók sem liggur frammi í veiðihúsi.
Verönd er við húsið með gasgrilli.
Annað
Veiðimenn eru beðnir um að nota einungis merkta slóða á veiðikorti og aka ekki utan þeirra.
Veiði síðustu ára í Hallá eru um 100 laxar á ári.
Vinsælar flugur hafa m.a. verið ýmsar gárutúbur og rauður og svartur frances.