Stangaveiðifélagið Árblik er eitt þeirra félaga sem leigir veiðirétt í Hlíðarvatni. Félagið var stofnað 1988. Félagið leigir út 2 stangir ásamt veiðihúsi.

Stangirnar eru leigðar út saman. Húsið er notalegt en einfalt, gistirými er fyrir 5. Húsið er gaskynnt og sólarsella sér um vatnið og ljósið. ATH. Innifalið í veiðileyfinu er leyfi fyrir 2 stangir og afnot af veiðihúsinu.

Veiðimenn mega mæta að kvöldi fyrir Skráðan veiðidag og veiða frá kl. 20:00. Veiði lýkur svo að kveldi veiðidags kl. 20:00. Engin tímamörk eru á veiðinni og geta menn því veitt næturlangt meðan bjart er. Leyfð er veiði á Flugu og spón.

Leyfilegt Agn: Fluga og spónn

Hér eru nánari upplýsingar um Hlíðarvatn og Árblik.

Ef þig vantar aðstoð við að ganga frá bókun, hafðu þá samband í síma 897 3443 eða sendu póst á [email protected]