Verð fyrir 2 stangir í heilan dag.
Ath. Greitt er fyrir 2 stangir, en veiða má á 3 stangir.
Stangardagurinn á kr. 7.500
Veiðileyfi í Austurbakki Ölfusár, við Selfoss.
VORVEIÐI
Ölfusá – Selfoss – Austurbakki
2 stanga svæði á austurbakka Selfoss.
Efri mörk svæðisins eru rétt fyrir neðan Sjúkrahúsið á Selfossi. Neðri mörkin við enda byggðarinnar, að sunnanverðu. Þar má sjá klett sem markar enda svæðisins. Aðal veiðisvæðið nær frá horni, sunnan við kirkjugarð Selfossbæjar, og um 600 metra neðar.
Svæðið er í landi jarðanna Selfoss I og Selfoss II
VORVEIÐIN – Svæðið hefur að sjaldan verið reynt að vori til, en kunnugir segja að á svæðinu séu góðir vorveiðistaðir fyrir birting og staðbundinn urriða. Hafið samband fyrir nánari upplýsingar.
Veiðisvæði neðan Brúar er ægifagurt – Flottir strengir og fallegar breiður.
Veiðimenn verða að fara varlega í Ölfusá, eins og öllum öðrum vatnsföllum. Ekki skal vaða út, nema rétt í flæðarmálið í grunnu vatni í Ölfusá.
Seldar eru 2 stangir, saman í pakka – 1 heilan dag í senn. Greitt er fyrir 2 stangir sem veiða neðan við brú, en veiða má á stöng nr 3 ofan brúar – en ATH. ekki má vaða útí ána ofan brúar.
Verð á stangardag er frá kr. 7.500.
Veiðitímabil: 1. apríl til 10 júní.
Veiðitími: 7-13 og 14-20.
Agn: Fluga er eina leyfilega agnið og skal sleppa öllum fiski í vorveiðinni.
Veiðimenn eru hvattir til að veiða í flotvestum – Ölfusá er mikið vatnsfall og straumþung á köflum.