Skillandsá

Í fyrsta sinn er nú boðið upp á silungsveiði í Skillandsá í formlegri vefsölu. Það er því einstakt tækifæri fyrir veiðimenn að verða meðal þeirra fyrstu sem kynnast þessu fallega veiðisvæði.

Skillandsá er lítil en einstaklega falleg lindá sem rennur niður í Laugarvatn og þaðan áfram í Hólaá. Áin er tær og straumhörð á köflum, með fallegum hyljum, grunnum strengjum og grónum bökkum sem skapa kjöraðstæður fyrir bleikju og urriða.

Fyrir veiðitímabilið hefur verið lagður nýr vegur að ánni sem gerir aðgengi einstaklega þægilegt. Auðvelt er að komast að helstu veiðistöðum án langra gönguleiða og því hentar svæðið jafnt byrjendum sem reyndum veiðimönnum. Veiðisvæðið er í landi Hjálmsstaða. Vegslóðinn

Veiðin er takmörkuð við tvær stangir í senn, sem tryggir rólega og notalega veiðiupplifun þar sem nægt rými er fyrir alla til að njóta árinnar.

Tegundir: Bleikja og urriði.

Fjöldi stanga: 2 – seldar stakar eða saman.

Veiðitími: Max 12 tímar á milli 7 og 22:00.

Agn: Fluguveiði

Við hvetjum alla veiðimenn til að taka myndir af veiðistöðum og deila reynslu sinni.

Markmiðið er að byggja smám saman upp veiðikort og veiðistaðalýsingar fyrir Skillandsá svo framtíðarkynslóðir geti notið þeirra upplýsinga sem verða til á þessum fyrstu árum.

Verð fyrir stöng 8.500 per dag