Heill dagur
Hefðbundinn veiðitími.

Stöngin á 39.000 – seldar eru max 2 stangir

STÓRA LAXÁ

Stóra-Laxá fellur um 90 km leið, frá Grænavatni niður á milli Hrunamanna- og Gnúpverjahrepps, í Hvítá hjá Iðu. Hún er dragá, all vatnsmikil með um 512 km² vatnasvið. Stóra-Laxá er laxgeng langt inn í Laxárgljúfur sem gerir það að verkum að landslag með henni er bæði fjölbreytt og mikilfenglegt.

Flestir veiðimenn þekkja veiðisvæðin sem oft hafa verið nefnd Stóra Laxá I, II, III og IV – sem núna heita Neðri Stóra Laxá og Efri Stóra Laxá – en færri þekkja svæðið sem þar er fyrir ofan – það er svæðið sem er í sölu hérna á vefnum.

Gljúfrin
2 stanga ævintýri í efstu giljum Stóru Laxár. Stangirnar eru seldar saman eða stakar, stakir dagar í senn. Ef óskað er eftir er hægt að fá gistingu í fínu húsi, I sjálfsmennsku.

Veiðisvæðið geymir bæði stóra laxa og urriða.

Veiðisvæðið sjálft er 2-3km langt með nokkrum merktum nefndum veiðistöðum, en fleiri ónefndum þar á milli.

Veiðisvæðið er fært 4×4 bílum – slóðar eru vel merktir á veiðikorti sem veiðimenn fá – en einnig er kort inná AnglingIQ. Veiðisvæðið getur verið krefjandi yfirferðar enda veitt í gljúfrum þar sem hæðarmunur frá efri brún og niður að á, getur verið meira en 100 metrar.

Veiðitímabil: 1. Júlí – 30. September

Veiðitími: 7-13 og 16-22 og seinni vakt

Veiðisvæðið hefur verið prufukeyrt síðustu sumur við góðan árangur.

Veiðimenn eru hvattir til að fara með gát, hvar sem veitt er við Stóru Laxá.