Holl

2 stangir í 1 dag í Straumunum í Borgarfirði, 2-4 sept
hád – kvöld
Stangardagurinn á kr. 45.000

 

Veiðisvæði Straumana er þar sem Hvítá og Norðurá í Borgarfirði sameinast. Svæðið er að vonum mjög vinsælt meðal veiðimanna enda fer um svæðið gríðarlega mikið af laxi sem er á leið uppí laxveiðiárnar ofar á svæðinu.

Í Straumunum veiðist m.a. lax sem er á leið í Þverá, Norðurá og Gljúfurá. Einnig er alltaf töluvert af laxi á svæðinu allt tímabilið. Um og uppúr miðjum júlí bætist síðan sjóbirtingur í aflann og eftir því sem líður á sumarið er hann stærri hluti af veiðinni. Seldar eru 2 stangir í Straumana og er þær ávallt seldar saman. 2 veiðihús eru á svæðinu sem standa veiðimönnum til boða. Húsgjald, kr. 50.000 er innfalið. Uppábúið og þrif innifalin.

Leyfilegt agn er fluga í júní og júlí en í ágúst má einnig veiða á spún. Hérna er hægt að lesa nánar um Straumana.