Holl

2 stangir í 2 daga í Straumunum í Borgarfirði, 8-10. júní
hád – hád
Stangardagurinn á kr. 57.750
Fluguveiði only.

Veiðisvæði Straumana er þar sem Hvítá og Norðurá í Borgarfirði sameinast. Svæðið er að vonum mjög vinsælt meðal veiðimanna enda fer um svæðið gríðarlega mikið af laxi sem er á leið uppí laxveiðiárnar ofar á svæðinu. Þegar liður á sumarið og haustið, þá gengur einnig mikið af Sjóbirtingi í gegnum svæðið og heldur einnig til á svæðinu.

Í Straumunum veiðist m.a. lax sem er á leið í Þverá, Norðurá og Gljúfurá. Einnig er alltaf töluvert af laxi á svæðinu allt tímabilið. Um og upp úr miðjum júlí bætist síðan sjóbirtingur í aflann og eftir því sem líður á sumarið er hann stærri hluti af veiðinni. Seldar eru 2 stangir í Straumana og er þær ávallt seldar saman. 2 veiðihús eru á svæðinu sem standa veiðimönnum til boða. Húsgjald, kr. 65.000 er innfalið. Uppábúið og þrif innifalin.

Leyfilegt agn er fluga í júní og júlí en í ágúst og sept má einnig veiða á spún. Hérna er hægt að lesa nánar um Straumana.