Veiðisvæði Straumana er þar sem Hvítá og Norðurá í Borgarfirði sameinast. Svæðið er að vonum mjög vinsælt meðal veiðimanna enda fer um svæðið gríðarlega mikið af laxi sem er á leið uppí laxveiðiárnar ofar á svæðinu.
Í Straumunum veiðist m.a. lax sem er á leið í Þverá, Norðurá og Gljúfurá. Einnig er alltaf töluvert af laxi á svæðinu allt tímabilið. Um og uppúr miðjum júlí bætist síðan sjóbirtingur í aflann og eftir því sem líður á sumarið er hann stærri hluti af veiðinni. Seldar eru 2 stangir í Straumana og er þær ávallt seldar saman.
2 veiðihús eru á svæðinu sem standa veiðimönnum til boða. Húsgjald, kr. 65.000 er innifalið í verði á hverju holli. Uppábúið og þrif.
Leyfilegt agn er fluga í júní og júlí en í ágúst má einnig veiða á spún. Undir „Ár og vötn“ er hægt að lesa nánar um Straumana.
Kvóti er 2 laxar á stöng á dag – Veiða og sleppa má að vild.
| Image | Vara | Verð | Staða | Staðsetning | Tímabil | Aðgerð | hf:tax:product_cat | hf:tax:product_tag |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Straumar í Borgarfirði 28-30. ágúst 2026. 2 stangir í 2 daga. Húsgjald innifalið | Original price was: 341.000kr..313.000kr.Current price is: 313.000kr.. | Ekki á lager | Laxveiði, Sjóbirtingsveiði, Straumar í Borgarfirði, Veiðileyfi, Vesturland | Ágúst | Skoða | laxveidi sjobirtingsveidi straumar-i-borgarfirdi veidileyfi vesturland | agust | |
| Straumar í Borgarfirði 3-5. sept 2026. 2 stangir í 2 daga. Húsgjald innifalið | 305.000kr. | Ekki á lager | Laxveiði, Sjóbirtingsveiði, Straumar í Borgarfirði, Veiðileyfi, Vesturland | Sept | Skoða | laxveidi sjobirtingsveidi straumar-i-borgarfirdi veidileyfi vesturland | sept |
