Bjarnarfjarðará á Ströndum

Veiðitímabil: Frá 20. júní til 20. september.
Veiðitími: daglega kl: 07:00 – 13:00 og 16:00 – 22:00 (20. jún. – 20. ág.) 07:00 – 13:00 og 15:00 – 21:00 (21. ág. – 20. sept.)
Leyfilegt Agn: heimilt er að veiða á flugu, maðk og spún.

Gott aðgengi er að flestum veiðistöðum.  Ekki er veiðihús við ána en Hótel Laugarhóll býður upp á góða gistingu við árbakkann.  Þar er sundlaug, heitur pottur og veitingasala og einnig gott tjaldsvæði.

Bjarnafjarðará er sjóbleikjuá í Bjarnarfirði á Ströndum um 35 km akstur frá Hólmavík. Veiðisvæðið er um 7 km með 25 merktum veiðistöðum. Vatnasvæði árinnar er mjög fallegt og býður upp á fjölbreytt veiðisvæði. Bjarnafjarðará er eftirsótt sjóbleikjuá og þar veiðast stundum laxar. Veitt er á fjórar stangir í neðri hluta árinnar sem hér er fjallað um. Veiðisvæðið nær frá ósi upp að ármótum Goðdalsár og Sunndalsár.  Efsti veiðistaður svæðisins er Berghylur og er öll veiði bönnuð ofan hans í Goðdalsá (tilheyrir öðru veiðisvæði.)

Kort af ánni

Veiðifélag Bjarnafjarðará er umsjónaraðili árinnar. Nokkrar jarðir standa að veiðifélaginu. Veiðidögum er skipt niður á jarðirnar og þær ráðstafa þeim að eigin vilja. Sumar þeirra selja veiðileyfin áfram en aðrar nýta leyfin sjálf. Inni á veiða.is má finna nokkra lausa daga í ánni.

 

Hafðu samband

Tölvupóstur: [email protected]
Sími: 897 3443

Facebook