Brúará
Staðsetning: Á suðurlandi 85 km frá Reykjavík. Keyrt er yfir brúna við Brúará og tekinn afleggjarinn til hægri í átt að Skálholti. Spóastaðir er næsti bær vestan við Skálholt, er á mörkum Biskupstungnabrautar og Skálholtsvegar. Veiðisvæðið spannar 4.6 km kafla á austurbakka Brúarár, það er fyrir landi Spóastaða. Hægt er að keyra að eða nálægt flestum veiðistöðum. Ekki er leyfilegt að veiða á bakkanum gengt Spóastöðum, hann tilheyrir bænum Seli.
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur og spónn
Bestu flugur fyrir bleikju: Peacock, Móbútó, Pheasant tail og ýmsir kúluhausar
Veiðitími: 1. apríl til 28. september
Stangafjöldi: 8 stangir nema 10. – 20. ágúst, þá eru 4 stangir
Daglegur veiðitími: frá kl 8:00 til 22:00 (1 apríl – 20 ágúst) Og frá kl 8:00 til 21:00 (21 ágúst – 25 september).
Brúará er önnur vatnsmesta bergvatnsá landsins, hún er lindá og vatnasvæðið um 700 KM2, rennsli mjög jafnt eða um 67 rúmmetrar á sek. Lengd hennar er 44 km.
Veiði í Brúará er stunduð frá nokkrum bæjum, lax og silungsveiði á stöng. Silungurinn er bæði sjógenginn og staðbundinn 0.5 til 1.5 kg að þyngd. Lax gengur einkum í ágúst og september.
Veiðihús
Aðstöðuhús: Fínn kofi fyrir nesti með hreinlætisaðstöðu opin öllum veiðimönnum.
Umsjónarmaður: Áslaug Jóhannesdóttir á Spóastöðum er umsjónarmaður svæðisins.
Veiðimenn eru vinsamlega beðnir um að fylla skilmerkilega inn í veiðibókina allan afla að loknum veiðidegi. Veiðibókin er í veiðihúsinu.