Flókadalsá

Flóka, eða Flókadalsá, hefur einkenni bæði dragáa og lindáa. Hún á upptök í vestanverðu Oki, og fellur þaðan, 35 km. leið til Hvítár í Borgarfirði, rétt ofan við Svarthöfða. Meðalveiði síðustu 10 ára, 2015 til 2024 er 394 laxar.
Yfir 700 laxar veiddust á hverju ári frá 2008 til 2010. Sumarið 2021 komu 265 laxar á land. 2022 komu 519 laxar á land og sumarið 2023 komu 248 laxar á land. Vegna lindaráhrifa helst vatnsrennsli árinnar nokkuð stöðugt og eins eru sveiflur í veiði minni í Flóku en flestum öðrum ám. Því eru veiðileyfin eftirsótt og fá oftast færri en vilja.
Veiðileyfi og frekari upplýsingar: Veiðifélagið sjálft sér um sölu veiðileyfa.
Mjög lítið er um laus veiðileyfi í flókunni. Á sem er að ýmsu leyti sambærileg er Búðardalsá.
Veiðihús
Sumarið 2002 var tekið í notkun nýtt veiðihús við ána. Þar er hin besta aðstaða fyrir veiðimenn, gistirými er í fjórum þriggja manna herbergjum.