Hrútafjarðará
Staðsetning: Fjarlægð frá Reykjavík: 160 km
Veiðisvæði: Hrútafjarðará öll ásamt Síká.
Tímabil: 1.júlí – 30.september
Veiðileyfi: Hægt er að kaupa ýmist 2 eða 3 daga holl
Daglegur veiðitími: 1. júlí – 15. ágúst kl. 7-13 og 16-22 en frá 16. ágúst til 10. september 15-21 eftir hádegi. Eftir það 14-20 daglega eftir hádegi. Brottfarardag síðasta morguninn skal veitt til kl. 12:00.
Fjöldi stanga: Leyfðar eru 3 stangir.
Verð:
Veiðireglur: Fluga eingöngu leyfð og nú er skylt að sleppa öllum löxum 70 cm og stærri.
Vinsælar flugur: Rauð Frances, Sunray Shadow, mikrótúpur, hitch túpur, Blue Charm, Collie Dog, Snælda og fl.
Veiði síðastliðið ár: 2011 – 318 laxar og 120 sjóbleikjur. 2012 – 177 laxar. 2013 – 702 laxar. 2014 – 280 laxar. 2015 – 860 laxar. Meðalveiði síðustu 10 ára er um 460 laxar.
Einungis er leyft að veiða á flugu í ánni og hefur sá háttur verið á um árabil. Einungis þrjár stangir eru leyfðar í ánni í einu og er því vel rúmt um veiðimenn. Reglum um sleppingu laxa 70 cm og stærri er fylgt hart eftir og kvóti er tveir laxar á stöng .
Hrútafjarðará er frábær á fyrir smærri hópa og ein af albestu fluguveiðiám landsins á góðum árum eins metsumarið 2015. Hrúta ásamt Síká gaf 860 laxa á stangirnar þrjár en fyrra metið var sett 2013 þegar 702 laxar komu á land. Miklar göngur af vænum smálaxi var uppistaðan í veiðinni en þó var töluvert um stórlaxa eins og oft áður og nokkrir um og yfir 10 kg veiddust.
Nánari upplýsingar og veiðleyfi: Strengir er leigutaki Hrútafjarðarár og er hægt að fá allar nánari upplýsingar inná www.strengir.is.
Veiðihús
Veiðihús fyrir Hrútafjarðará er í landi Bálkastaða neðarlega í ánni að austanverðu á milli Síkár og gamla Staðarskála. Fjögur tveggja manna herbergi eru í húsinu sem eru uppábúinn og með handklæðum við komu veiðimanna sem mega koma um og eftir kl. 14 á komudegi. Því geta átta manns gist í veiðihúsinu. Tvö baðherbergi með sturtu, sérstakt vöðlu-og þurrkherbergi og fiskmóttaka eru í húsinu. Gott eldhús og stofa með stórum arinn setur mikinn svip á allt húsið. Nýtt var sumarið 2013 að þráðlaust internet var sett upp og er til afnota fyrir gesti. Stór verönd með grilli er við húsið. Veiðimönnum ber að þrífa húsið fyrir brottför en einnig er hægt að kaupa þá þjónustu ef samið er um það fyrirfram. Veiðimenn skulu hafa rýmt húsið kl. 13 á brottfarardegi.