Reykjadalsá í Þingeyjarsýslu er í Reykjadal. Reykjadalur er næsti dalur við Aðaldal. Aðallega veiðist urriði í Reykjadalsá en einnig bleikja og lax. Veiðisvæði árinnar spannar rétt um 35 km og því er vel rúmt um þær 6 stangir sem mega veiða hana að hámarki. Reykjadalsá er fyrst og fremst þekkt fyrir frábæra urriðaveiði og er urriðinn mjög vænn. Sumir kalla ánna alla, „þurrflugna Paradís“. Urriðinn virðist vel dreifður um alla á enda sýna veiðitölur að nóg virðist vera af honum í ánni. Árlega veiðast hátt í 3.000 urriðar að meðaltali og 20-70 laxar. Síðasta sumar komu all nokkrir urriðar á land sem voru yfir 50 cm langir.

Engin vara fannst sem passar við valið
Go to Top