Blanda er ein albesta laxveiðiá landsins með mjög sterkan stórlaxastofn.

Veiðin hefst á svæði I í Blöndu í byrjun júní og er erfitt að finna laxveiðiá sem að jafnaði skilar jafn góðri veiði í Júní og byrjun júlí. Á góðum dögum í júní og byrjun júlí, landa stangirnar á svæði I oft tugum laxa yfir daginn og getur meðalviktin verið mjög góð.

Dammurinn og Breiðan eru veiðistaðir sem gefa yfirleitt góða veiði allt veiðitímabilið.

Fjöldi Stanga: 4 stangir, 2 á hvorum bakka.

Veiðireglur og agn: Fluga er eina leyfilega agnið. Sleppa skal öllum laxi

Meðalveiði í Blöndu allri: Um 1.600 laxar á ári síðustu 10 veiðitímabil.
Meðalvikt: rétt um 4 kg.

HÉR AÐ NEÐAN ERU LAUSAR STANGIR Í BLÖNDU I Í ÁGÚST OG SEPT 2024. SELDAR ERU STAKAR STANGIR. HEILIR DAGAR. VEIÐIMENN KOMA SÉR SAMAN UM SKIPTINGU Á MILLI BAKKKA – 3ja TÍMA RÓTERING ER RÁÐLÖGÐ

Engin vara fannst sem passar við valið
Go to Top