Blanda II
Svæði II í Blöndu er skemmtilegt 4ra stanga svæði sem oft gefur góða veiði og þeir sem kynnst hafa svæðinu fara margir fara þangað ár eftir ár. Vel rúmt er um stangirnar 4 og eru á svæðinu.
Veiðisvæðið: Nær frá dæluhúsi í landi Breiðavaðs að fremsta grjótgarði úti í Blöndu, við heimreið að Æsustöðum að austan. Að vestan ræður merki sem þar hefur verið sett niður og er nokkru framar. Veiðistaðir 201 – 277
Á svæði 2 eru 4 stangir og skiptist svæðið þannig: Tvær stangir eru á svæðinu frá Laugahvammi að Bjarnarstreng (veiðistaðir 201 að 260).Tvær stangir eru á svæðinu frá Einarsbreiðu og uppfyrir Svarthyl ( veiðistaðir 261 að 277).
Veiðireglur og agn: Fluga er eina leyfilega agnið og sleppa á öllum laxi.
Meðalveiði í Blöndu allri: Um 1.600 laxar á ári síðustu 12 veiðitímabil.
Meðalvikt: rétt um 4 kg.
HÉR AÐ NEÐAN ERU LAUSAR STANGIR Í BLÖNDU II Í ÁGÚST OG SEPT 2024. SELDAR ERU STAKAR STANGIR. HEILIR DAGAR. VEIÐIMENN KOMA SÉR SAMAN UM SKIPTINGU Á MILLI BAKKKA – 3ja TÍMA RÓTERING ER RÁÐLÖGÐ