Blanda 3
Blanda III er gjöfullt veiðisvæði, ekki síst þegar kemur inní miðjan júlí. Veiðisvæðið er um 20 km langt og er nokkuð fjölbreytt.
Veiðisvæðið: Afmarkast neðst af hugsaðri línu, dreginni frá Svartárbrú að svonefndum Svartabakka að vestan (sjá veiðikort). Efri mörk svæðisins eru um 50m neðan við affall Blönduvirkjunar.
Stangarfjöldi: 3 stangir
Veiðireglur og agn: Fluga er eina leyfilega agnið og er kvóti á dag 1 hængur undir 68 cm, á vakt. Þegar kemur inní Ágúst, þá er 100% sleppiskylda á laxi.
Meðalveiði í Blöndu allri: Um 1.800 laxar á ári síðustu 12 veiðitímabil.
Meðalvikt: rétt um 4 kg.
Vatnsstaða: Þegar líða tekur á sumarið er árviss viðburður að hækka tekur í Blöndulóni sem nær hámarki þegar vatnsborðið fer að flæða yfir stífluna við lónið. Er þá talað um að Blanda fari á yfirfall. Útlit fyrir þetta ár, 2022, er mjög gott. Líkur eru á að hægt verði að veiða í Blöndu inní haustið, jafnvel út veiðitímann í September.
ATH. Greitt er hér að neðan fyrir fyrir 2 stangir en veiða má á 3 stangir – þetta gildir í ágúst og sept veiðinni 2022, þegar stakir dagar eða vaktir eru bókaðar.