Hrútafjarðará er vinsæl laxveiðia á og ein af albestu fluguveiðiám landsins með 10 ára meðalveiði yfir 400 laxa á einungis þrjár stangir. Sjóbleikja veiðist líka og þá gjarnan á neðsta svæði árinnar og sumar mjög vænar. Veiði hefst í júní og lýkur í lok september og fyrrihluta sumars er góð von í stórlaxi og laxar um eða yfir 10 kg veiðast í Hrútafjarðará árlega. Stangirnar þrjár eru seldar saman og aðgangur að veiðihúsi fylgir án sérstaks endurgjalds fyrir allt að 8 manns og því tilvalinn valkostur fyrir smærri hópa.

Staðsetning: Fjarlægð frá Reykjavík: 160 km.

Veiðisvæði: Hrútafjarðará öll ásamt Síká.

Tímabil: 21.júní – 30.september.

Veiðireglur: Fluga eingöngu leyfð og er skyllt að sleppa öllum löxum 70 cm og stærri og kvóti er einn laxar á stöng á dag undir þeim stærðarmörkum og veitt og sleppt eftir það.

Veiði síðastliðin ár: Um 200 laxar og 200 sjóbleikjur og sjóbirtingar.

ImageVaraVerðStaðaStaðsetningTímabilAðgerðhf:tax:product_cathf:tax:product_tag
Hrútafjarðará 18-20. júlí 2026 - 3 stangir í 2 daga
Hrútafjarðará 18-20. júlí 2026 - 3 stangir í 2 daga1.390.000kr.

1 á lager

, , , , Skoðahrutafjardara laxveidi nordurland veidileyfi vesturlandjuli
Go to Top