Veiðileyfi í Sog Ásgarð silungasvæði. Heill dagur í veiði án gistingar.

Frá opnun til 20.06 eru þrjár stangir á svæðinu og eru þær seldar stakar. Frá 20.06 og út tímabilið eru 2 stangir seldar saman í 1 pakka á silungasvæði (sjá skiptingu að neðan)

Veiðitími: Veidd er ein samfelld vakt frá klukkan 8-20 án hlés
Leyfilegt agn: Fluga eingöngu
Veiðireglur: Veiða og sleppa eingöngu bæði á silungi og laxi
Veiðisvæðið: Í upphafi veiðitíma, þ.e. frá 1. apríl til 20. júní er veitt frá markagirðingu við Álftavatn og upp allt Ásgarðssvæðið, að veiðimörkum Ásgarðs og Syðri Brúar.
Eftir 20. júní er aðeins veitt á svokölluðu silungasvæði. Þá afmarkast svæðið af víkinni neðan gamla veiðihússins og að markagirðingu við Álftavatn.

Veiðileyfi: þrjár stangir stangir eru leyfðar á svæðinu frá opnun til 20.06 og eru þær seldar stakar. Eftir 20.06 eru tvær stangir á svæðinu og eru þær seldar saman.

Veiðihús: Ekkert veiðihús.
Hægt er þó að leigja veiðihúsið við Ásgarð kjósi veiðimenn svo og er þar pláss fyrir allt að 8 manns. Veiðihúsið er staðsett við árbakkann með útsýni úr heita pottinum yfir ána. Þar er einnig sauna og útisturta sem skapa góðar aðstæður til þess að slaka vel á eftir veiðidaginn. Það eru 4 svefnherbergi í húsinu, þar af þrjú með tveimur einstaklingsrúmum hvert og eitt með tvíbreiðu rúmi. Fimm salerni eru í húsinu, 2 innisturtur og ein útisturta, heitur pottur , góðar eldunaraðstæður, Netflix og kolagrill.

Engin vara fannst sem passar við valið
Go to Top