Silungasvæði Tungufljóts hefur verið á uppleið síðustu ár og þeir sem hafa lagt sig fram hafa gert oft á tíðum góða veiði. Svæðið er afar víðfemt og nær frá ármótum Einholtslæks og Tungufljóts og í raun eins langt upp með fljótinu og menn kæra sig um að fara. Vel rúmt er um þær 8 stangir sem er leyft að veiða á.
Veiðisvæði: Fyrir ofan ármót Einholtslækjar og Tungufljóts og upp fyrir brú á þjóðvegi 35 við Geysi. Einnig þverár Tungufljóts, Laugá, Beiná og Almenningsá.
Veiðisvæðið er mjög fallegt, allt frá stórum straumhörðum hyljum til lítilla lygnubakka í þveránum. Urriðinn getur orðið mjög vænn og þeir sem best þekkja til geta oft sett í skemmtilega veiði.
Alls ekki má veiða í Einholtslæk !!
Ath. Eingöngu veiða og sleppa!
Stangarfjöldi: 8 stangir
Tímabil: 1. apríl – 20. sept
Daglegur veiðitími:
07:00 – 13:00 og 16:00 – 22:00 (1. apríl – 20. ág.)
07:00 – 13:00 og 15:00 – 21:00 (21. ág. –20. sept.)
Leyfilegt agn: Fluga og spúnn°
Veiðitæki: Einhenda 9-10”, lína 5-7

Bestu flugur: Black Ghost, Dentist, Rektor, Svartur Nobbler, Olive Nobbler og Þingeyingur.

Staðhættir og aðgengi: Hægt er að aka víða að veiðistöðum, en vatnasvæðið er geysivíðfeðmt. Ef menn ætla að komast um það allt er ekki um annað að ræða en að ganga.

Veiðihús: Nei.

Engin vara fannst sem passar við valið
Go to Top