2 stangir í heilann dag, 20. júní
Hefðbundinn veiðitími.
Stöngin á 26.900 – 38.800

Alviðra – Sogið – Laxveiði

Staðsetning: Rétt vestan við Selfoss – um 50 km frá Reykjavík
Veiðisvæði: Vesturbakki Sogs fyrir landi Alviðru og austurbakki neðan brúar við Þrastalund.
Tímabil: 20. júní – 22. sept
Veiðileyfi: Heilir dagar.
Daglegur veiðitími: Frá kl. 7 – 13 og 16-22. Frá 10. ágúst þá er seinni vaktin frá 15-21
Fjöldi stanga: 2 stangir seldar saman í pakka – hægt að senda póst á [email protected] ef óskar er eftir stakri stöng
Leyfilegt agn: Fluga

Veiðireglur: Athugið, eingöngu er leyfð fluguveiði. Veiðimenns skulu sleppa öllum fiski.

Veiðihús: Gott veiðihús er við ána en það fylgir ekki með þegar bókað er. Húsið er Rúmgott – 3 svefnherbergi – stofa – eldhús – baðherbergi. Rafmagn og heitt vatn. Hægt er að bóka húsið sérstaklega, ef það er laust. Húsgjald er kr. 45.000. Sængur og koddar á staðnum. Hægt er að kaupa uppábúið og þrif.

Sogið er Vatnsmikil Á og eru veiðimenn hvattir til að fara með gát og nota björgunarvesti við veiðar. Vesti eru í útihúsi við veiðihúsið.

Alviðra er upphald margra þeirra sem veiða reglulega í Soginu – svæðið er ægifagurt og þekkt fyrir stórlaxa sem hafa veiðst hafa í gegnum tíðina. Svæðið geymir þekkta veiðistaði eins og Kúagil og Ölduna. 

 Seldir eru stakir dagar.