Holl

3 stangir í 1 dag, 9-10. júlí 2026

Hád – hád

Stangardagurinn á kr. 158.000.

Veiðsvæðið Brennan er við ármót Þverár og Hvítár í Borgarfirði. Sá fiskur sem er á leið í Þverá fer þarna um. Í Brennunni hafa veiðimenn mest veitt í vatnaskilunum þar sem árnar mætast. Veitt er á 3 stangir í Brennunni mest allt tímabilið og leyfilegt er að veiða á flugu allt tímabilið en í ágúst og september er einnig leyfilegt að veiða á spún.  Veiðin er oft ævintýralega góð á svæðinu. Framan af sumri er laxinn aðal uppistaðan í veiðinni en þegar kemur undir lok júlí, þá fer sjóbirtingur að ganga að krafti upp í árnar.

2 rúmgóð veiðihús standa veiðimönnum til boða sem veiða Brennu í Borgarfirði. Veiðihúsin voru tekin rækilega í gegn veturinn 2017/18 og nú fylgja uppábúin rúm fyrir veiðimenn og þrifið er eftir hvert holl. Húsgjald, kr. 69.000, er innifalið í verðinu.

Ef spurningar vakna, sendið póst á [email protected]