Veiðsvæðið Brennan er við ármót Þverár og Hvítár í Borgarfirði. Sá fiskur sem er á leið í Þverá fer þarna um. Í Brennunni hafa veiðimenn mest veitt í vatnaskilunum þar sem árnar mætast.
Veitt er á 3 stangir í Brennunni mest allt tímabilið og leyfilegt er að veiða á flugu allt tímabilið en í ágúst og september er einnig leyfilegt að veiða á spún.
2 rúmgóð veiðihús standa veiðimönnum til boða sem veiða Brennu í Borgarfirði. Húsgjald er greitt með hverju holli, kr. 69.000 og er húsgjaldið innifalið í verði.
Veiðin er oft ævintýralega góð á svæðinu. Framan af sumri er laxinn aðal uppistaðan í veiðinni en þegar kemur undir lok júlí, þá fer sjóbirtingur að ganga að krafti upp í árnar.
