Holl

2 stangir í Móru 26-28. Júlí 2026
2 dagar, hálf – heill – hálf
Stangardagurinn á kr. 45.000

Móra er lax-og silungsveiðiá á sunnanverðum Vestfjörðum skammt frá Brjánslæk, þar sem breiðafjarðarferjan Baldur er með landfestar. Veiðisvæðið er um 6 km að lengd og er veitt á tvær stangir.

Tímabil: 1. júlí til 25. september. ATH. í sumar þá er ekki veitt alla daga – áin er hvíld 1-2 daga í viku.

Daglegur veiðitími: 7–13 og 16–22 en eftir 15. ágúst er veitt frá 15-21 á seinni vaktinni.

Leyfilegt agn: Fluga. Fram til 20. ágúst má hver stöng halda eftir einum smálaxi í holli, veiddum löxum umfram það skal sleppt. Eins skal sleppa öllum laxi sem er yfir 70 cm að stærð.  Hins vegar er heimilt að landa öllum sjóbirtingi.

Fjöldi stanga: Tvær stangir eru leyfðar í ánni og eru seldar saman í tvo daga, hálfur-heill-hálfur fyrirkomulag.

Agn og reglur: Eingöngu er leyfð fluguveiði með flugustöng í Hallá. Skylt er að sleppa öllum laxi en heimilt er að hirða urriða.

Veiðitölur: Meðalveiði síðustu ára í Móru er um 140 laxar á ári. Vinsælar flugur hafa m.a. verið ýmsar gárutúbur og rauður og svartur frances.

Veiðihús
Veiðihús stendur við Móru og fylgir með veiðileyfum. Veiðihúsið er um 30 fm og er með gistirými fyrir 4 aðila.  Veiðimenn þurfa að koma með sængurföt og handklæði.
Skylt er að skrá alla veiði í veiðibók sem liggur frammi í veiðihúsi.

Verönd er við húsið með gasgrilli.

Vöðlugeymsla er fyrir ofan húsið, þar sem að frystir er til staðar.