Bíldsfell, Laxveiði
Stakur dagar, 14. ágúst – seldar 3 stakar stangir.
Ekkert hús – engin gisting.
Veiðitími 7-13 og 16-22.
Laxveiði á Bíldsfellssvæðinu í Soginu
Veiðisvæðið við Sog Bíldsfell er vesturbakki Sogsins frá útfallinu fyrir neðan Írafossstöðina og niður í Flóann þar sem veiði fyrir landi Torfastaða hefst.
Fjöldi stanga: Veitt er með 3 stöngum á svæðinu og eru þær yfirleitt seldar allar saman. Seldir eru 2-3 dagar í senn.
Veiðihús: Gott veiðihús er í Bíldsfellinu sem var stækkað vorið 2022. Uppábúið og þrif innifalin
Laxveiði: Veiðin í Soginu hefur verið á uppleið síðustu örfá ár, og er það efalaust ekki síst að þakka áherslu á fækkun neta í Ölfusá.
Veiðisvæðið: Fjölbreytt og skemmtilegt svæði með fjölda merktra veiðistaða. Gott fyrir bæði Tvíhendur og einhendur.
Leiðsögumaður: Við mælum með að þeir sem eru lítt kunnugir Soginu, nýti sér þjónustu Leiðsögumanna. Þekking og reynsla þeirra geta komið að góðum notum í vatnsmikilli Á eins og Soginu.
Silungsveiði: Mikil og góð bleikjuveiði er víða að finna og algengt að setja í 4-5 punda bleikjur.
Athugið, eingöngu er leyfð fluguveiði á Alviðru og Bíldsfellssvæðinu. Öllum laxi og bleikju skal sleppt.
