Veiðisvæðið við Sog Bíldsfell er vesturbakki Sogsins frá útfallinu fyrir neðan Írafossstöðina og niður í Flóðann, rétt fyrir ofan Tunguá en þar er sem veiði fyrir landi Torfastaða hefst.
Veitt er með 3 stöngum á svæðinu og eru þær yfirleitt seldar allar saman.
Seldir eru 2-3 dagar í senn.
Gott veiðihús er í Bíldsfellinu. Húsgjald með hverju holli er 75.000, er innifalið í verðinu. Þrif og uppábúið.
Laxveiði: Veiðin í Soginu hefur verið á uppleið síðustu örfá ár, og er það efalaust ekki síst að þakka áherslu á fækkun neta í Ölfusá.
Veiðisvæðið: Fjölbreytt og skemmtilegt svæði með fjölda merktra veiðistaða. Gott fyrir bæði Tvíhendur og einhendur.
Leiðsögumaður: Við mælum með að þeir sem eru lítt kunnugir Soginu, nýti sér þjónustu Leiðsögumanna. Þekking og reynsla þeirra geta komið að góðum notum í vatnsmikilli Á eins og Soginu.
Silungsveiði: Mikil og góð bleikjuveiði er víða að finna og algengt að setja í 4-5 punda bleikjur.
Athugið, eingöngu er leyfð fluguveiði á Alviðru og Bíldsfellssvæðinu. Veiðimenn skulu sleppa bæði laxi og bleikju.
Ath á brottfaradegi þarf að vera búið að tæma húsið í síðasta lagi kl. 13.
