Eyjafjarðará – Fréttir og veiðileyfi

Við rákumst á þessa frétt inni á vef Eyjafjarðarár en veiðin þar hefur verið brokkgeng í sumar. „Það er óhætt að segja að þetta veiðisumar í Eyjafjarðará hafi verið nokkuð sérstakt. Áin var að mestu leiti óveiðandi vegna vatnavaxta og litar fram yfir verslunarmannahelgi. Síðan þá hafa komið nokkur góð skot. Aðallega hefur það verið

2013-08-30T09:37:30+00:0030. ágúst 2013|Fréttir|

Litlaá í Kelduhverfi – lausar stangir

Litlaá í Kelduhverfi er ein besta sjóbirtingsá landsins en auk sjóbirtings þá veiðist staðbundinn urriði og nokkuð mikið af sjóbleikju. Upptök Litluár er í heitum brunnum við bæinn Keldunes en einnig á hún upptök sín í Skjálftavatni. Árið 2004 kom þar á land stærsti sjóbirtingur sem veiðst hefur hér á landi, 23 punda ferlíki. Veiðin

2013-08-29T11:53:29+00:0029. ágúst 2013|Fréttir|

Nýjar laxveiðitölur – góð vika að baki

Jæja, þá eru nýjar laxveiðitölur komnar í hús. Rangárnar halda toppsætunum eins og við var að búast. Í liðinni viku var fín veiði í mörgum ám eins og Þverá/Kjarrá, Stóru Laxá, Miðfjarðará, Eystri Rangá og Ytri Rangá en veislan er rétt að byrja í þeirri síðast nefndu. Eftir hádegi á morgun munu veiðimenn í Ytri

2013-08-28T23:32:25+00:0028. ágúst 2013|Fréttir|

Vel heppnað útboð á veiðirétti í Straumfjarðará

Tilboð, sem bárust í útboði veiðifréttar í Straumfjarðará, voru opnuð í fyrradag, 26. ágúst. Stjórn veiðifélagsins hefur nú farið yfir tilboðin og félagsfundur, sem verður á þriðjudaginn í næstu viku, mun ákveða við hvern verður samið til næstu 4ra ára. Samtals bárust 14 tilboð frá 9 aðilum. 10 af þessum tilboðum voru hærri en núverandi

2013-08-28T16:29:27+00:0028. ágúst 2013|Fréttir|

Rosaleg veiði í Stóru Laxá – myndir

Það hefur vart farið fram hjá neinum að veiðin í Stóru Laxá hefur verið frábær síðustu 3 vikur, eða svo. Rosalegar aflahrotur hafa sést enda er veiðin að nálgast 1.000 laxa, samtals á öllum svæðum. Dæmi um veiðina má sjá á þessum myndum hér að neðan. Nokkrir félagar fóru á svæði I og II á

2013-08-27T19:23:55+00:0027. ágúst 2013|Fréttir|

Veiðifréttir úr Brúará

Veiðin í Brúará fyrir landi Spóastaða hefur verið upp og ofan í sumar. Það hafa komið flott skot en þess á milli er minna af bleikju á svæðinu. Við viljum enn og aftur minna veiðimenn á að færa aflann til bókar, eða senda okkur aflatölur í pósti. Nú er að nálgast september en það er

2016-11-18T14:31:20+00:0027. ágúst 2013|Fréttir|

Fréttir af útboðum

Tuttugasti og sjötti ágúst, tæpur mánuður eftir af laxveiðivertíðinni og sjóbirtingstíminn er hafinn. Birtingurinn er byrjaður að ganga mjög víða og enn er að veiðast einn og einn lúsugur lax. Þetta er búið að vera fínt veiðisumar en það má vænta breytinga á veiðileyfamarkaðnum á næstunni. Fyrstu merki þess sem koma skal í vetur og

2016-11-18T14:31:20+00:0026. ágúst 2013|Fréttir|

Eldvatn í Meðallandi er nýtt veiðisvæði á veiða.is

Eldvatn í Meðallandi er nýtt veiðisvæði hér á veiða.is. Eldvatnið er í vestur Skaftafellssýslu, um 270 km frá Reykjavík. Veitt er með 6 stöngum á svæðinu og fluga er eina leyfilega agnið. Sú regla er á svæðinu að öllum birtingi sem veiðist, skal sleppt aftur. Er það liður í uppbyggingarstarfi á stofni hins skaftfellska sjóbirtings.

2016-11-18T14:31:20+00:0023. ágúst 2013|Fréttir|

Birtingurinn mættur í Laxá og Brúará

Laxá og Brúará í Fljótshverfi er flott sjóbirtingssvæði í Skaftárhreppi. Veitt er með 2 stöngum á svæðinu og leyfilegt er að veiða á flugu, maðk og spún. Veiðileyfi á þetta flotta svæði má finna hér inni á veiða.is. Við fengum fréttir í gær frá veiðimanni sem var á svæðinu um helgina. Hann sagði okkur að

2016-11-18T14:31:20+00:0022. ágúst 2013|Fréttir|

Nýjar laxveiðitölur – Norðurá af toppnum

Nú eru nýjar laxveiðitölur að skríða inná angling.is og er þær ár sem verma efstu sætin búnar að skila inn tölum. Norðurá fellur af toppnum niður í það þriðja, eins og við var að búast. Ytri og Eystri Rangá halda sínu striki  og eru komnar á toppinn, en vikuveiðin þar var 605 og 504 laxar.

2013-08-21T23:52:47+00:0021. ágúst 2013|Fréttir|
Go to Top