Hlíðarvatn í Selvogi er í flottu formi

Hlíðarvatn í Selvogi hefur verið að gefa vel þessar síðustu vikur. Við birtum í vikunni myndir af boltableikjum sem veiddust á mánudag og þriðjudag og svo í dag fengum við fréttir frá honum Trausta Jónssyni sem er nú í Hlíðarvatni í fyrsta skipti. Hann sagði: „Erum í fyrsta skipti í Hlíðarvatni og það gengur ljómandi

2013-07-27T18:10:01+00:0027. júlí 2013|Fréttir|

Góður gangur í Norðfjarðará

Norðfjarðará hefur verið eitt af best geymdu leyndarmálum í stangveiðinni en hún er ein af 10 bestu bleikjuám landsins. Veiðin hefur í gegnum tíðina verið nokkuð jöfn og veiðist að jafnaði rétt um 700 bleikjur. Í fyrra var metveiði í ánni þegar 1.142 bleikjur og 11 laxar komu á land. Mikið af bleikjunni er á

2013-07-27T10:24:38+00:0027. júlí 2013|Fréttir|

Hvað á að hafa í matinn í veiðitúrnum?

Einn aðal hausverkurinn sem veiðimenn sem eru á leiði í veiðitúr glíma við er „hvaða skal kaupa í matinn fyrir veiðitúrinn“. Sumir hópar hafa það sama ár eftir ár en fyrir aðra er málið flóknara. Ef þú ert á leið í veiði vestur eða norður á land, þá þarf málið ekki að vera svo flókið.

2013-07-26T19:30:35+00:0026. júlí 2013|Fréttir|

Brunná – veiðin í sumar

Brunná er í Öxarfirði. Í Brunná veiðist bæði staðbundinn urriði og bleikja en einnig er von á sjóbirtingi þegar líður á sumarið. Umhverfi árinnar er rómað fyrir nátturufegurð og fuglalíf. Veitt er á 3 stangir í Brunná og eina leyfilega agnið er fluga. Veiðin hefur verið mjög góð í sumar og holl sem lauk veiðum

2013-07-26T10:34:07+00:0026. júlí 2013|Fréttir|

Enn veiðast flottir urriðar á Þingvöllum

Vorið í vor var mjög eftirminnilegt í Þingvallavatni fyrir þær sakir að mikið af stórum urriða kom á land. Sumarið hefur ekki síður verið eftirminnilegt fyrir þær sakir en ólíkt því sem oft hefur verið áður, þá veiðast vikulega flottir urriðar,stórir sem smáir. Þessa hér veiddi Dagfinnur Þorvarðarson í gær við Arnarfellið.  

2013-07-25T22:02:28+00:0025. júlí 2013|Fréttir|

Laxveiðin – nýjar tölur

238 laxar á 2 stangir á 7 dögum! Það kallar maður alvöru veiðitölur. Þetta var veiðin í Laxá á Ásum síðustu 7 daga. Nýjar tölur voru að berast inná angling.is – Í heild er  búið að landa 16.350 löxum í þeim 25 ám sem miðað er við. Í síðustu viku komu 4.952 laxar á land.

2013-07-25T11:53:23+00:0025. júlí 2013|Fréttir|

Flott kusa úr Brúará – laus leyfi næstu daga

Veiðin í Brúará virðist vera komin á fullt. Vænar bleikjur eru að veiðast og bæði vanir og óvanir í ánni, eru að setja í hana. Um 50 bleikjur eru komnar á land á Spóastöðum síðustu 5 daga og nokkrar þeirra mjög vænar. Það eru lausar stangir í Brúará í dag og á morgun en helgin

2013-07-25T09:54:44+00:0025. júlí 2013|Fréttir|

Enn og aftur vænar bleikjur úr Hlíðarvatni

Enn og aftur berast fréttir af flottri veiði í Hlíðarvatni. Í sumar hafa margar mjög vænar bleikjur komið á land í vatninu og hér er það aftur hún María Petrína Ingólfsdóttir sem er á ferðinni. María var við vatnið í gær og fyrradag en í gærkveldi veiddi hún 3,9 kg. bleikju í Botnavíkinni. Að auki

2013-07-24T21:39:31+00:0024. júlí 2013|Fréttir|

Hofsá 2013

Hofsá er ein af þeim stóru hér á landi. Ekki bara í þeim skilningi að veiðin í ánni sé almennt góð, heldur skilar hún mjög góðri meðalþyngd veiddra laxa. Hún er ein af stórlaxaánum á Íslandi. Einungis er leyfð fluguveiði í ánni og strangar reglur um að öllum stórum laxi skuli sleppt aftur. Sumir unnendur

2013-07-23T23:48:17+00:0023. júlí 2013|Fréttir|
Go to Top