Straumfjarðará og nýjar veiðitölur

Veiðin í Straumfjarðará hefur farið vel af stað. 56 laxar hafa veiðst á þeim 14 dögum sem veiðin hefur staðið yfir. Veitt er á 3 stangir í ánni og leyft agn er fluga. Hér til hliðar er Nanna Viðarsdóttir með 85cm hrygnu sem hún veiddi í Bræðrastreng. Landssamband veiðifélaga birti nýjar veiðitölur í dag.

2013-07-04T20:48:07+00:004. júlí 2013|Fréttir|

17 laxa dagur í Ölfusánni í gær

Við sögðum í vikunni frá fínum gangi í ölfusánni. Um 25 laxar voru komnir á land og stærsti dagurinn til þess tíma var 9 laxa dagur. Dagurinn í gær toppaði það heldur betur en þá komu 17 laxa á land á svæðinu. Flestir laxana voru á bilinu 2,2 – 2,5 kg. Sá stærsti í gær

2013-07-04T13:20:13+00:004. júlí 2013|Fréttir|

Búðardalsá – helgin framundan(selt)

Við sögðum frá því fyrr í vikunni að næsta helgi er laus í Búðardalsá á Skarðströnd. Veiði hófst fyrir um viku síðan en fyrstu hollið náði átta löxum. Myndin hérna meðfylgjandi var tekin í því holli. Hún sýnir laxatorfu í einum af neðri hyljum árinnar. Þeir sem opnuðu þetta sumarið hafa opnað Búðardalsá síðustu árin.

2013-07-03T22:22:11+00:003. júlí 2013|Fréttir|

Tungufljót í Bláskógabyggð

Tungufljót í Bláskógabyggð er byrjað að taka á móti veiðimönnum. Veiða.is kíkti á fossinn Faxa í dag sem er efsti veiðistaður laxasvæðisins. Við höfðum heyrt að töluvert af laxi væri komin á svæðið og við fengum það staðfest meðan við litum þar við. Tveir laxar stukku niðri á breiðunni, annar þeirra mjög vænn. Við höfðum

2013-07-03T19:29:03+00:003. júlí 2013|Fréttir|

Einarsson dagur í Veiðihorninu

Allir flugurveiðimenn þekkja íslensku Einarsson fluguhjólin. Næst komandi laugardag er Einarsson dagur í Veiðihorninu í Síðumúlanum. Steingrímur Einarsson mun mæta og kynna Invictus 6 – Frábær tilboð verða á eldri gerðum. Kíkið við á laugardaginn.   

2013-07-03T16:36:08+00:003. júlí 2013|Fréttir|

Góður gangur í Ölfusá

Veiðin í Ölfusá hefur verið ágæt það sem af er. Stærsti dagur tímabilsins var í gær en þá komu 9 laxar á land. Þeir voru á bilinu 1,6 – 5,3 kg. Flestir laxarnir komu á maðk en þó kom amk. einn á flugu. Í heildina eru komnir 29 laxar á land. Stærsti laxinn var 5,5

2013-07-02T13:18:03+00:002. júlí 2013|Fréttir|

Skjálfandafljótið geymir væna laxa

Það búa vænir laxar í Skjálfandafljóti. Fljótið hefur farið mjög vel af stað og yfir 70 laxar komnir á land. Þessi bolti hér að ofan kom á land í gærmorgun á austurbakkanum, þeim Efri. Skjálfandafljótið er frábær kostur fyrir þá sem vilja berjast við svona boltafiska í stórbrotnu umhverfi. Þess má geta að nú eru

2013-07-02T10:19:26+00:002. júlí 2013|Fréttir|

Stórlax í opnun Breiðdalsár

Breiðdalsá opnaði í gær, 1. júlí. Fjórir laxar komu á land á opnunardaginn, þar á meðal þessi 99cm og 10,4 kg. hængur. Var hann viktaður og mældur vandlega áður en honum var sleppt aftur í ána. Þessi lax er klárlega einn sá stærsti sem sögur fara af á þessari vertíð. Veiðimaðurinn var Nils Jörgenson og

2013-07-02T01:48:22+00:002. júlí 2013|Fréttir|

Veiðifréttir – Brúará og Gufuá

Veiðin í Gufuá hefur verið fín að undanförnu. Töluvert af fiski er komin í ána en hann heldur sig lang mest á neðstu stöðum hennar. Veiðimenn sem voru í ánni á föstudaginn náðu 9 löxum, flestum á bilinu 5-6 pund. Nú er nálægt 25 laxar komnir á land úr ánni. Ágætt vatn hefur verið þessa

2013-07-01T15:07:27+00:001. júlí 2013|Fréttir|

Önnur væn bleikja úr Hlíðarvatni

Nú berast jákvæðar fréttir úr Hlíðarvatni úr ýmsum áttum. Við birtum fyrir helgina mynd af vænni bleikju sem María Petrína Ingólfsdóttir og Vilborg Reynisdóttir veiddu í vikunni sem leið en þessi hér til hliðar kom á land í morgun í Botnavíkinni. Veiðimaðurinn heitir Heiðar Rafn Sverrisson.Heiðar var hann við vatnið í morgun og tók fjórar

2013-06-30T18:24:45+00:0030. júní 2013|Fréttir|
Go to Top