Laxá á Refasveit – lokatölur
Laxá á Refasveit á upptök í Laxárdal og er alls um 22 km að lengd. Áin fellur í sjó nokkuð norðan við Blönduós. Meðalveiði áranna 1974 til 2011 eru 146 laxar. Metveiði var sumarið 2009 þegar 340 laxar komu á land.
Laxá á Refasveit á upptök í Laxárdal og er alls um 22 km að lengd. Áin fellur í sjó nokkuð norðan við Blönduós. Meðalveiði áranna 1974 til 2011 eru 146 laxar. Metveiði var sumarið 2009 þegar 340 laxar komu á land.
Veiðitímabilinu á Hrauni er nú lokið í sumar. En Jörðin Hraun er staðsett vestan Ölfursárósa í Sveitarfélaginu Ölfusi. Stangveiði hefur lengi verið stunduð á Hrauni og hefur aðgengi að veiðistöðum batnað mikið hin síðustu ár. Áður en Eyrarbakkarvegur var lagður var aðeins farið að ánni um hlaðið á Hrauni. Aðallega veiðist sjóbirtingur en einnig bleikja
Við sögðum í gær frá holli sem var að taka við í Geirlandinu í gær við kjöraðstæður. Væta var um helgina og nú er áin að sjatna. Á fyrstu vaktinni í gær voru stangirnar 4 með 2 birtinga, báða 3,3 kg. Nú höfum við fréttir frá morgunvaktinni.
Nú stendur sjóbirtingstíminn sem hæðst og fréttir og myndir af vænum birtingum ættu að fylla hvert gljúfur og gil, en lítið heyrist. Þeir sem tóku í dag við stöngum á veiðislóðum eystra fengu kjör aðstæður. Nú er að sjá hvort einhverjar fréttir berist. Í kvöld fengum við smá eftirmiðdagsskýrslu af veiðisvæðum SVFK.
Eins og við höfuð áður séð í september þá er þetta tími stórlaxanna í ánnum. Hængarnir eru virkilega viðkvæmir fyrir öllu áreiti og klárir í að stugga við því sem ekki á að vera á heimili þeirra í hylnum.
Selá í vopnafirði á upptök sín í Selárbotnum suður af Botnafjallgarði. Rennur hún þaðan til sjávar í Vopnafirði, um 55 km leið. Selá er ein af perlunum í flóru íslenskra laxveiðiáa. Veitt er á 9 stangir í Selá og er eingöngu leyfð veiði á flugu. Stór hluti þeirra sem veiða í Selá eru erlendir veiðimenn.
Við höfum í sumar gert perlunni á austurlandi, Norðfjarðará, nokkuð góð skil enda fyllilega ástæða til. Veiði í ánni síðustu ár hefur verið stöðug og litlar sveiflur á stofni árinnar. Í ár lítur áin jafnvel enn betur út enda sýna þær veiðitölur sem nú liggja fyrir, að um met sumar sé að ræða.
Jökla og Breiðdalsá hafa glatt marga veiðimenn síðustu ár. Veiðin í ár hefur s.s. ekki verið eins góð og síðustu sumur en þó virðist september ætla að skila sínu. Nokkrir boltar hafa veiðst í ánnum í sumar og hér að neðan sjáum við nokkra þeirra.
Stóra Laxá í Hreppum hefur s.s. átt betri sumur og oft höfum við nú heyrt af meiri veiði í september en nú í haust, en hún hefur samt átt sína spretti. Nú eru líklega komnir ca. 440 laxar uppúr ánni á stangirnar 10, þar á meðal þessir 3 stórlaxar sem við sjáum hér á síðunni.
Eins og við nefndum einversstaðar um daginn þá er september tími stórra laxa. Nokkrir slíkir hafa veiðst nú síðustu daga. Þetta tröll hér til hliðar kom á land í neðsta Eyjakrók í Breiðdalsá. Mældist hann 102 cm og 11,58 eða rétt um 23 pund. Veiðimaðurinn heitir Örn Óskarsson. Myndina tók Sigurður Oliver Staples.
© Veiða.is | Sími +354 897 3443 | [email protected] | www.veida.is