Af opnunum

All margar veiðiár opna nú í vikunni en í gær opnuðu ár eins og Laxá í Kjós, Laxá í Leirársveit, Elliðaárnar og Laxá í Aðaldal. Um helgina opnuðu ár eins og Haffjarðará, Hítará og Fnjóská. Dæmi um á sem opnar í dag er Búðardalsá sem skráð er hér á vefinn.

2012-06-21T09:24:41+00:0021. júní 2012|Fréttir|

Veiðifréttir og opnanir á næstunni

Nú er laxveiðitímabilið að keyra af stað á fullu. Á næstu dögum opna margar af helstu ám landsins. Góðar opnanir í Norðurá og Blöndu gefa góð fyrirheit og eins hafa Straumarnir tekið vel við sér. Meðal annars fékk veiða.is fréttir af veiðimönnum sem voru að koma þaðan með 5 grálúsuga í farteskinu. Síðustu daga höfum

2012-06-19T15:49:02+00:0019. júní 2012|Fréttir|

Breytingar á veiðihúsinu við Hofsá

Staðið hafa yfir framkvæmdir við veiðihúsið Árhvamm við Hofsá, Vopnafirði í vetur og er þeim nú lokið. Eftir breytingu á húsinu er boðið upp á 7 tveggja manna herbergi með baði, þar af eitt herbergi með aðgengi fyrir hjólastól, og tvö eins manns herbergi með aðgang að baði. Einnig hefur verið sett upp gufubað fyrir

2012-06-13T16:17:07+00:0013. júní 2012|Fréttir|

Nýjar flugur sem gefa vel

Það er svolítið gaman af því þegar fréttir berast af nýjum flugum sem slá í gegn í vötnum og ám, hjá veiðimönnum og fiskum. Svo virðist vera um þessar mundir að Júlli í Flugukofanum sé að hitta á réttu uppskriftirnar, þó svo að sagan ein geti dæmt um það að lokum.

2012-06-13T09:49:53+00:0013. júní 2012|Fréttir|

Ótrúleg saga úr Blöndu

Veiðimaður sem mætti í Blöndu á eftir opnunarhollinu um daginn setti í all ótrúlegan „fisk“ á breiðunni og þurfti hann að stinga sér til sunds til að ná honum á land.  

2012-06-12T15:00:25+00:0012. júní 2012|Fréttir|

Nýtt veiðihús við Laxá á Ásum

Þann 16. júní næstkomandi klukkan 14 munu Veiðifélag Laxár á Ásum og salmon Tails ehf., leigutaki árinnar, halda formlega opnun nýs veiðihúss við Laxá á Ásum. Veiðihúsið, sem er eitt það glæsilegasta á landinu kemur í stað eldra veiðihúss sem hefur þjónað veiðimönnum í Laxá á Ásum í áratugi.

2012-06-12T10:23:29+00:0012. júní 2012|Fréttir|

Annar í Laxi

Eftir fín opnunarholl í bæði Norðuá og Blöndu virðist heldur hafa róast á bökkum ánna, þó eitthvað af laxi virðist vera að ganga í þær. „Fulltrúi“ veiða.is var í holli sem hætti á hádegi í gær í Blöndu og sagði hann að einn lax hefði komið á land en fátt annað hefði markvert gerst.

2012-06-09T08:37:13+00:009. júní 2012|Fréttir|

Seltjörn

Seltjörn á Reykjanesi er veiðivatn sem margir þekkja en það er örstutt frá þjóðveginum sem liggur til Grindavíkur. Vatnið hefur verið vinsæll áfangastaður veiðiáhugamanna í langan tíma og frábær staður til að æfa fluguköstin. Mikið af fiski er í vatninu en í gegnum tíðina hefur töluvert af fiski verið sleppt í það, bæði urriða, bleikju

2016-11-18T14:31:17+00:007. júní 2012|Fréttir|

Veiði á ósasvæði Laxá á Ásum

Veiða.is kíkti við á ósasvæði Laxá á Ásum í gær. Hér á vefnum hefur verið hægt að nálgast veiðileyfi á þetta svæði og náðum við nú að kynnast því af eigin raun og líkaði okkur vel, þrátt fyrir hvassviðri og kulda.  

2012-06-05T17:31:46+00:005. júní 2012|Fréttir|

Dagur eitt

Laxveiðitímabilið fer vel af stað. Mest hefur borið á fréttum úr Norðurá í dag, enda byrjaði veiðin með látum í ánni. Ellefu laxar komu á land á fyrstu vakt sumarsins, allt tveggja ára fiskar. Veit þetta á gott í ánni í sumar. Blanda opnaði einnig í morgun og var veiði þar einnig með miklum ágætum.

2012-06-05T15:28:32+00:005. júní 2012|Fréttir|
Go to Top