Fréttir af Litlaá

Upplýsingar um Litlaá í Kelduhverfi eru skráðar hér á veiða.is. Vatnið í Litlaá er frekari heitt eða að meðaltali um °12. Vaxtahraði fiska er frekar mikill við þessar aðstæður og er sjóbirtingsstofn árinnar því einn sá stærsti hér á landi. Veiði í Litlaá hófst þann 1. apríl og hefur veiðin vægast sagt verið mjög góð.

2016-11-18T14:31:16+00:0010. apríl 2012|Fréttir|

Vatnamótin – opnun

Aðstæður í Vatnamótunum voru ágætar þegar veiði hófst að morgni 1. apríl. Þegar leið á daginn fór að kólna og svo að snjóa, og snjóaði mikið. Myndirnar hér að neðan sýna hvernig umhorfs var í gær og í lok sunnudagsins. Samtals komu um 75 fiskar á land í opnuninni.

2012-04-03T13:01:16+00:003. apríl 2012|Fréttir|

Fréttir á 3ja degi jóla

Hvað er svo að frétta af veiðislóðum á þriðja degi jóla? Við ætlum að reyna setja hingað inn undir, fréttir af veiðislóðum frá því í gær og dag. Veiða.is heyrði í veiðimönnum sem voru í Grímsá í gær en á tímabilinu 1. apríl til 10. maí er sjóbirtingsveiði heimil á 2 stangir í ánni. Kalt

2012-04-03T09:34:41+00:003. apríl 2012|Fréttir|

Fleiri apríl fréttir

Veiðimenn halda áfram að kanna veiðislóðir nú í upphafi apríl og að sama skapi munum við halda áfram að leita frétta af veiðislóðum. Mokveiðifélagið var á ferð í Húseyjarkvísl í gær og landaði samtals 26 fiskum, þar af 4 löxum. Allt voru þetta vænir fiskar, flestir á bilinu 66-73 cm. Veðrið var bærilegt framan af

2012-04-02T10:25:17+00:002. apríl 2012|Fréttir|

Veiðifréttir 1. apríl

Í vatnamótunum var góð veiði í morgun. Á morgunvaktinni komu um 30 birtingar á land. Framan af degi var svolítill vindur og súld eða rigning en þegar leið á daginn fór að snjóa. Þegar haft var samband austur, um kl. 18:00, var hvít jörð yfir að líta. Þá var heildartala veiddra birtinga í dag komin

2012-04-01T18:14:15+00:001. apríl 2012|Fréttir|

Fréttabréf veiða.is nr. 5

Nú hefur fimmta fréttabréf veiða.is verið sent í pósthólf áskrifenda. Í þessu fréttabréfi tökum við á móti fyrsta gestapenna bréfsins. Er þar á ferð maðurinn á bak við veiðibloggsíðuna, Flugur og Skröksögur, Kristján Friðriksson. Kristján er fróður um veiði og kemur efninu frá sér á skemmtilegan máta. Ég hvet alla til að fylgjast með Flugur

2012-03-31T23:35:12+00:0031. mars 2012|Fréttir|

Hraunið komið á vefinn

Hraun í Ölfusi er komið á vefinn. Jörðin Hraun er staðsett vestan Ölfusárósa í Sveitarfélaginu Ölfusi. Veiðitímbilið hefst 1. apríl og því lýkur 20. september. Hraunið hefur verið vinsælt meðal ýmissa sunnlenskra veiðimanna í mörg ár. Hægt er að gera góða veiði þarna þegar birtingurinn gengur inn og út, eftir sjávarföllunum. Einfalt er að kaupa

2016-11-18T14:31:16+00:0028. mars 2012|Fréttir|

Framlenging leigu á Minnivallalæk

Um helgina var gerður nýr 10 ára samningur um áframhaldandi leigu Strengja á Minnivallalæk í Landssveit. Nú þegar eru árin orðin 20 sem Strengir hafa haft hann á leigu og því verða árin að minnsta kosti 30. Nánar upplýsingar má finna á www.strengir.isÍ Minnivallalæk er veitt á 4 stangir og er einungis fluga leyfð. Síðast

2012-03-27T21:53:24+00:0027. mars 2012|Fréttir|

Veiðivötn eru ný á síðunni

Veiðivötn eru ný hér á veiða.is en Veiðivötn er vatnaklasi norðan Tungnaár á Landmannaafrétti. Alls eru vötn og pollar á svæðinu um 50 talsins. Vötnin hafa verið einn vinsælasti áfangastaður veiðimanna undanfarin ár og hafa færri fengið veiðileyfi og gistingu en hafa viljað. Hægt er að fræðast nánar um svæðið hér vinstra megin á síðunni.

2012-03-26T21:09:04+00:0026. mars 2012|Fréttir|
Go to Top